Sjúkrahúsið á Akureyri
Sjúkrahúsið á Akureyri
Sjúkrahúsið á Akureyri

Lífeindafræðingur á rannsóknadeild Sjúkrahússins á Akureyri

Með auglýsingu þessari er framlengdur áður auglýstur umsóknarfrestur um starfið Lífeindafræðingur á rannsóknadeild Sjúkrahússins á Akureyri sem birtist á Starfatorgi þann 09.11.2026.

Ertu góður liðsmaður og langar þig að starfa í fjölbreyttu og hvetjandi starfsumhverfi?

Laus er til umsóknar staða lífeindafræðings á rannsóknadeild Sjúkrahússins á Akureyri.
Starfshlutfall er 80-100% í dagvinnu auk bakvaktaskyldu.
Um er að ræða ótímabundna stöðu sem er laus nú þegar eða eftir nánar samkomulagi.

Næsti yfirmaður er Inga Stella Pétursdóttir deildarstjóri rannsóknadeildar

Rannsóknadeildin sinnir þjónustu við Sjúkrahúsið á Akureyri ásamt öðrum heilbrigðisstofnunum á Norðausturlandi. Nú stendur yfir vinna við faggildingu deildarinnar sem stefnt er á að ljúka árið 2027.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Almenn störf lífeindafræðinga á sviði klínískrar lífefnafræði, blóðmeinafræði, sýkla- & veirufræði og í blóðbanka 
  • Gætir að öryggi allra upplýsinga og fylgir öryggisstefnu
  • Ber ábyrgð á þeim rannsóknum sem hann framkvæmir og svarar
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Próf í lífeindafræði og gilt íslenskt starfsleyfi 
  • Lögð er áhersla á frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og hæfileika í samskiptum og samvinnu
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu
Fríðindi í starfi

36 stunda vinnuvika, velferðartorg, heilsuræktarstyrkur, samgöngustyrkur

Utworzono ofertę pracy24. November 2026
Termin nadsyłania podań7. December 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Kompetencje na wysokim poziomie
AngielskiAngielski
Wymagane
Kompetencje na wysokim poziomie
Lokalizacja
Eyrarlandsvegur, 600 Akureyri
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe