

Liðsmaður í framleiðslu hjá Icelandair Packages
Icelandair Packages er teymi innan Icelandair sem gerir viðskiptavinum kleift að kaupa flug, hótel, afþreyingu og aðra þjónustu á einum stað.
Liðsmaður í framleiðslu kemur til með að halda utan um framleiðslu, samskipti við birgja og rekstur hverskyns pakkaferða, í nánu samstarfi við aðra sérfræðinga teymisins, með áherslu á íslenskan markað undir merkjum Icelandair VITA.
Við leitum að öflugum einstaklingi sem hefur áhuga á fjölbreyttu og krefjandi starfi í framleiðslu og rekstri pakkaferða. Við leitum einnig eftir liðsmanni sem hefur góða samskipta- og skipulagshæfileika, sýnir frumkvæði og drifkraft í starfi og elskar að veita framúrskarandi þjónustu.
Ábyrgðarsvið:
- Framleiðsla, skipulagning, verðlagning og rekstur pakkaferða frá Íslandi
- Vöruframboð, uppsetning og utanumhald í bókunarkerfi
- Samningar og samskipti við birgja
- Samstarf við aðrar deildir og stuðningur við söluteymi
- Önnur tilfallandi störf
Hæfni og menntun:
- Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi
- Kunnátta á Amadeus er kostur
- Góð almenn tölvuþekking er nauðsynleg, ásamt hæfni og vilja til að læra.
- Nákvæmni, skipulagshæfni og samviskusemi
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góð samskiptahæfni og teymishugsun
- Hugmyndaríki, jákvæðni og lausnamiðað hugarfar
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
Stefna Icelandair er að stuðla að jafnrétti og fjölbreytileika á meðal starfsfólks og hvetur einstaklinga af öllum kynjum til að sækja um.
Umsóknir ásamt kynningarbréfi og ferilskrá óskast eigi síðar en 31.ágúst.













