

Leikskóli tækifæranna leitar að þér!
Á Arakletti fer fram mikið og metnaðarfullt starf, þar sem áherslan er á samskipti og að vera góðir vinir, ásamt ásamt sköpun og sjálfstæði barnanna. Við erum í góðum tengslum við náttúru og nærumhverfi og einnig er gott samstarf á milli leikskóla í svetiarfélaginu og mikill stuðningur við starfsfólk. Við erum stolt af að geta boðið uppá húsnæði sem uppfyllir nútíma kröfur og starf sem er í rífandi þróun, þar sem við erum meðal annars að innleiða Heillaspor í samstarfi við Miðstöð Menntunar og Skólaþjónustu. Á ári hverju eru um 40-50 börn og 12-15 kennarar sem koma saman á Arakletti og sköpum við saman leikskóla tækifæranna - bæði fyrir börn og starfsfólk.
Ef þú vilt vera í okkar hópi, þá væri þín helsta ábyrgð:
· Að vinna að uppeldi, menntun og faglegri umönnun barnanna.
· Vera leiðandi í að efla nám barnanna með þáttöku í leik.
· Skráning og ígrundun m.a. á tengslum og leik barna.
· Taka þátt í skipulagningu faglegs starfs, gerð skólanámsskrár, mati á starfsemi leikskólans, innleiðingu á Heillasporum og fleiri verkefnum.
· Teymisvinna, foreldrasamstarf og fleiri verkefni samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara og aðalnámsskrá leikskóla.
Menntunar- og hæfniskröfur
· Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi.
· Leikskólakennaramenntun og/eða leyfisbréf kennara.
· Reynsla af uppeldis – og kennslustörfum með ungum börnum.
· Sjálfstæð og skipulög vinnubrögð.
· Góðir samvinnu- og samskiptahæfileikar.
· Góð íslenskukunnátta.
islandzki










