Leikskólinn Hulduberg
Leikskólinn Hulduberg
Leikskólinn Hulduberg

Leikskólastjóri óskast í leikskólann Hulduberg

Leikskólastjóri óskast í leikskólann Hulduberg

Mosfellsbær óskar eftir að ráða öflugan leiðtoga í stöðu leikskólastjóra leikskólans Huldubergs. Leitað er að lausnamiðuðum og drífandi einstaklingi með brennandi áhuga á vellíðan og farsæld barna, framsækinni skólaþróun og framúrskarandi leikskólastarfi.

Hulduberg er heilsueflandi leikskóli þar sem gert er ráð fyrir um 100 börnum á aldrinum 1-3 ára og tekur starfsemin mið af menntastefnu Mosfellsbæjar, Heimurinn er okkar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stjórnun og ábyrgð á daglegum rekstri, þjónustu og starfsemi skólans
  • Fagleg forysta á sviði kennslu og skólaþróunar
  • Ábyrgð á mannauðsmálum, s.s. ráðningum, vinnutilhögun og starfsþróun
  • Að leikskólinn starfi samkvæmt viðeigandi lögum og reglugerðum, aðalnámskrá leikskóla og menntastefnu sveitarfélagsins
  • Virkt og gott samstarf við alla aðila skólasamfélagsins
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfi til að nota starfsheitið kennari og kennslureynsla á leikskólastigi
  • Viðbótarmenntun á sviði stjórnunar eða önnur framhaldsmenntum sem nýtist í starfi er æskileg
  • Leiðtoga- og stjórnunarhæfni, reynsla af stjórnun er æskileg
  • Reynsla af faglegri forystu og þróun í leikskólastarfi
  • Sjálfstæði í störfum, ríkt frumkvæði, lausnamiðuð hugsun og jákvætt viðmót
  • Færni til að leita nýrra leiða í leikskólastarfi og leiða framsækna skólaþróun
  • Færni í áætlanagerð og fjármálastjórnun er æskileg
  • Framúrskarandi lipurð, hæfni og virðing í samskiptum ásamt góðu orðspori
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku
Fríðindi í starfi
  • Samgöngustyrkur
  • Líkamsræktarstyrkur
  • Sundkort 
  • Afsláttur til starfsfólks af vistunargjöldum í leikskóla

36 stunda vinnuviku er náð með 38 stunda vinnuframlagi vikulega.  Starfsfólk safnar því tveimur stundum vikulega sem nýttir eru sem frí á skráningardögum leikskóla Mosfellsbæjar.

Utworzono ofertę pracy13. May 2025
Termin nadsyłania podań26. May 2025
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
AngielskiAngielski
Wymagane
Kompetencje na wysokim poziomie
Lokalizacja
Lækjarhlíð 3, 270 Mosfellsbær
Rodzaj pracy
Zawody
Oznaczenia