Reykjavíkurborg: skóla- og frístundasvið
Reykjavíkurborg: skóla- og frístundasvið

Leikskólastjóri

Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir stöðu leikskólastjóra í leikskólanum Seljakot lausa til umsóknar. Leitað er að einstaklingi sem býr yfir leiðtogahæfileikum og er tilbúinn til að leiða áfram gott og metnaðarfullt leikskólastarf.

Seljakot er fimm deilda leikskóli með 84 börnum. Leikskólinn stendur við Rangársel í Breiðholti. Gott útivistarsvæði er í nágrenni leikskólans.

Áhersluþættir leikskólans eru frumkvæði, sköpun og tjáning.

Í leikskólanum er lögð áhersla á leik, sköpun, sjálfstæði og eru börnin hvött til að hafa áhrif á eigið nám og umhverfi. Leikurinn er í forgrunni og börnin fá tíma og rými til að kanna, skapa og læra á eigin forsendum.

Námskrá leikskólans byggir á Aðalnámskrá leikskóla og Menntastefnu Reykjavíkurborgar. Markmiðið er að skapa öruggt og hvetjandi námsumhverfi þar sem styrkleikar, áhugi og rödd hvers barns fá að njóta sín.

Í Seljakoti er lifandi og skapandi samfélag þar sem jákvæð samskipti, gleði og traust einkenna daglegt starf.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vera faglegur leiðtogi leikskólans og móta framtíðarstefnu hans innan ramma laga, reglugerða,aðalnámskrár og stefnu Reykjavíkurborgar.
  • Stýra rekstri og daglegri starfsemi skólans, þar á meðal fjárreiðum, áætlanagerð og eftirfylgni.
  • Standa vörð um farsæld, velferð og nám barna skólans.
  • Hafa yfirumsjón með innra mati á starfi leikskólans og umbótaáætlunum.
  • Hvetja til þróunar og nýbreytni í leikskólastarfi.
  • Bera ábyrgð á starfsmannamálum, svo sem ráðningum, vinnutilhögun og starfsþróun.
  • Tryggja virkt og farsælt samstarf við foreldra, foreldrafélög, skólaþjónustu og aðra ytri hagaðila sem deila ábyrgð á velferð barna.

Í öllu starfi skóla- og frístundasviðs er unnið að innleiðingu Menntastefnu Reykjavíkur, Látum draumana rætast, þar sem leiðarljósin eru virkni og þátttaka barna, aukið samstarf og fagmennska.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf
  • Leikskólakennaramenntun er æskileg
  • Framhaldsnám og reynsla af stjórnun í leikskóla æskileg
  • Kennslureynsla á leikskólastigi
  • Stjórnunar- og leiðtogahæfileikar
  • Þekking á rekstri, áætlanagerð og fjármálastjórnun
  • Lipurð og hæfni í samskiptum
  • Faglegur metnaður, sjálfstæði og frumkvæði
  • Áhugi og/eða reynsla af að leiða þróunarstarf
  • Íslenskukunnátta C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar
Utworzono ofertę pracy18. September 2026
Termin nadsyłania podań29. September 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Rangársel 15, 109 Reykjavík
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe