Leikskólinn Reynisholti
Leikskólinn Reynisholti

Leikskólakennari - Reynisholt

Leikskólakennari eða starfsmaður með sambærilega menntun óskast í um 100% starf á leikskólann Reynisholt. Við erum staðsett í Grafarholti, Gvendargeisla 13, 113 Reykjavik.

Lögð er áhersla á lífsleikninám í gegnum snertingu, jóga, umhverfismennt og bernskulæsi.

Í Reynisholti dvelja samtímis 80 börn á fjórum deildum.

Kjörorð leikskólans eru fagmennska, virðing og vellíðan.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Helstu verkefni og ábyrgð

Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara, þ.m.t að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra.

Menntunar- og hæfniskröfur
  •  Leikskólakennaramenntun æskileg eða önnur sambærileg menntun
  •  Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg 
  •  Færni í samskiptum 
  •  Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður 
  •  Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð 
  •  Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar
  •  Íslenska B2 skv. samevrópska tungumálarammanum
Fríðindi í starfi
  • 36 stunda vinnuvika
  • sundkort
  • menningarkort
  • Árlegur heilsustyrkur eftir 6 mán. í starfi
  • afsláttur af dvalargjaldi
  • samgöngusamningur
  • frír hádegismatur
  • forgangur í leikskóla.
Utworzono ofertę pracy29. September 2026
Termin nadsyłania podań13. October 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Kompetencje na wysokim poziomie
Lokalizacja
Gvendargeisli 13, 113 Reykjavík
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.Nauczyciel
Zawody
Tagi zawodowe