
Launafulltrúi
Við leitum að öflugum einstaklingi í starf launafulltrúa hjá áreiðanlegu alþjóðlegu þjónustufyrirtæki. Leitað er að einstaklingi sem býr yfir góðri þekkingu á launavinnslu, er skipulagður og sjálfstæður í vinnubrögðum og með mjög góða samskiptahæfni. Starfið krefst mikillar nákvæmni og hæfni til að sinna mörgum verkefnum undir álagi. Við leitum að einstaklingi sem sýnir frumkvæði, er talnaglöggur, hugsar í lausnum, getur unnið sjálfstætt og lagt sitt af mörkum til umbóta og aukinnar skilvirkni þegar kemur að launa- og mannauðsferlum hjá fyrirtækinu.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Umsjón með mánaðarlegri launavinnslu.
- Tryggja rétta og tímanlega vinnslu launa.
- Samvinna við bókhaldsteymi vegna launatengdra verkefna í mánaðar- og árslokauppgjöri.
- Gerð lögbundinna skýrslna, mánaðaskýrslna og annarra verkefna sem tengjast launavinnslu.
- Eftirlit með tímaskráningu og réttum skráningum í launakerfi.
- Samskipti við innri og ytri hagaðila og skilvirk afgreiðsla launatengdra fyrirspurna.
- Byggja upp og rækta sterk samskipti við starfsfólk og stjórnendur og veita framúrskarandi þjónustu.
- Leiða og innleiða umbætur í ferlum til að auka skilvirkni og nákvæmni í launavinnslu.
- Þátttaka í innlendum og alþjóðlegum verkefnum sem tengjast launa- og mannauðsferlum.
Menntun og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. viðskiptafræði eða reynsla af launavinnslu.
- Góð þekking á kjarasamningum, þar sem rík áhersla er lögð á trúnað og öryggi gagna.
- Að minnsta kosti fimm ára reynsla af launavinnslu.
- Góð greiningarhæfni og kunnátta í Excel.
- Reynsla af SAP er kostur.
- Jákvætt hugarfar og framúrskarandi samskiptahæfni.
- Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður fyrir faglegum árangri.
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta, í ræðu og riti.
Við leitum að einstaklingi sem:
- Nýtur þess að vinna að verkefnum sem krefjast mikillar nákvæmni.
- Er lausnamiðaður, sýnir frumkvæði og getur unnið sjálfstætt.
- Hefur áhuga á að stuðla að umbótum og aukinni skilvirkni í launavinnslu.
Umsóknarfrestur er til og með 7. janúar 2026.
Sækja skal um á www.vinnvinn.is
Umsókn þarf að fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem fram kemur ástæða umsóknar og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.
Umsjón með starfinu hafa Jensína K. Böðvarsdóttur ([email protected]) og Unnur Ýr Konráðsdóttir ([email protected]) hjá Vinnvinn.
islandzki
Angielski










