
Auðkenni ehf.
Auðkenni var stofnað árið 2000 af fyrirtækjum í fjármálum og upplýsingatækni vegna vaxandi krafna um aukið öryggi í rafrænum viðskiptum. Fyrirtækið hefur verið í eigu hins opinbera frá árinu 2022 og á samstarf við fjölmarga aðila, meðal annars fjármálageirann, opinbera aðila og leiðandi fyrirtæki í upplýsingatækni og fjarskiptum. Þá á fyrirtækið einnig í viðamiklu evrópsku samstarfi. Þjónusta Auðkennis er byggð á íslenskum lausnum, þróuðum af fyrirtækinu sjálfu, og alþjóðlegum lausnum sem sniðnar eru að íslenskum aðstæðum. Rafræn skilríki Auðkennis spila lykilhlutverk í að auðvelda samskipti einstaklinga, fyrirtækja og stofnana. Þjónusta og lausnir Auðkennis eru mikilvægar grunnstoðir í stafrænum innviðum íslensks samfélags. Hjá Auðkenni starfa um 30 manns í dag.
Kerfisstjóri / IT Administrator
Við leitum að öflugum og lausnamiðuðum kerfisstjóra til að ganga til liðs við teymið okkar. Starfið felur í sér rekstur, viðhald og þróun upplýsingakerfa fyrirtækisins ásamt stuðningi við starfsfólk og þjónustur sem snúa að viðskiptavinum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með Linux- og Windows-kerfum
- Uppsetning, rekstur og viðhald sýndarvéla
- Uppsetning, uppfærsla og öryggisviðhald netþjóna
- Innri upplýsingatækniaðstoð við starfsfólk
- Stuðningur við þjónustur fyrirtækisins þegar rekstrarvandamál koma upp
- Vöktun og eftirlit með kerfum og innviðum
- Almenn netrekstrarvinna, bilanagreining og viðhald
- Umsjón með eldveggjum og netöryggi
- Þátttaka í sjálfvirknivæðingu uppsetninga, uppfærslna og rekstrarferla
- Gerð og viðhald skriftna með Python, Ansible og Bash
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af rekstri Linux- og/eða Windows-umhverfa
- Þekking á sýndarvæðingu og netþjónarekstri
- Góð þekking á netkerfum og bilanagreiningu
- Reynsla af sjálfvirknivæðingu og skriftun
- Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og góð samskiptahæfni
Kostur ef umsækjandi hefur þekkingu á
- Nagios, Kibana eða öðrum vöktunar- og greiningarkerfum
- Elasticsearch rekstri, uppfærslum og viðhaldi
- SQL gagnagrunnum og gagnagrunnsumsýslu
- Gámaumhverfum á borð við Docker eða Podman
- CI/CD lausnum og verkfærum eins og Jenkins
- Registry lausnum, t.d. Sonatype
- Load balancing lausnum, sérstaklega F5
Fríðindi í starfi
• Niðurgreiddur hádegsimatur í mötuneyti
• Gjaldfrjálst aðgengi að léttu fæði á vinnutíma
• Frábær starfsandi, reglulegir viðburðir og virkt starfsmannafélag
• Heilsustyrkur og símastyrkur og önnur fríðindi í gegnum stéttarfélag
Utworzono ofertę pracy10. June 2026
Termin nadsyłania podań10. July 2026
Znajomość języków
islandzkiWymagane
AngielskiWymagane
Lokalizacja
Katrínartún 4, 105 Reykjavík
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe
Podobne oferty pracy (8)

Kerfisstjóri með AI-ofurkrafta
Atmos Cloud

Kerfisstjóri í notenda- og útstöðvaþjónustu
Advania

Viltu starfa sem kerfisstjóri hjá Wise á Akureyri?
Wise lausnir ehf.

Viltu starfa sem kerfisstjóri hjá Wise?
Wise lausnir ehf.

Viltu starfa sem sérfræðingur í skýjalausnum hjá Wise?
Wise lausnir ehf.

Tæknimaður í Framlínuþjónustu
OK

Kerfisstjóri
Nói Síríus

Hópstjóri tölvuþjónustu
TACTICA