

ICEWEAR Garn Akureyri óskar eftir starfsfólki í hlutastarf
ICEWEAR Garn Akureyri óskar eftir að ráða metnaðarfullan og skapandi einstakling í sölu og verslunarstarf. Viðkomandi þarf að hafa reynslu og áhuga á prjónaskap. Mikilvægt er að viðkomandi búi yfir ríkri þjónustulund og vilja til að veita framúrskarandi góða þjónustu.
Um hlutastarf er að ræða, önnur hver helgi með möguleika á virkum dögum.
Icewear Garn Akureyri er í Amaró húsinu, Hafnastræti. Þar fæst allt það helsta sem við kemur prjónaskap. Garn, prjónauppskriftir og fylgihlutir.
Um ICEWEAR
Icewear hefur hlotið jafnlaunvottun og vinnur samkvæmt jafnréttisstefnu fyrirtækisins sem og mannauðsstefnu. Þá er í gildi samskiptasáttmáli. Gildi Icewear eru samskipti, metnaður og ánægja. Lögð er áhersla á samvinnu, góð samskipti og stuðning milli deilda fyrirtækisins.
Tekið er vel á móti nýju starfsfólki.
Starf sölufólks í Icewear Garn er bæði fjölbreytt og skemmtilegt. Helstu verkefni eru aðstoð við viðskiptavini um val á garni og uppskriftum, áfyllingar á vörum, tiltekt, þrif og önnur tilfallandi almenn verslunarstörf.
- Þekking á prjónaskap og geta til að leiðbeina viðskiptavinum um allt er viðkemur vali á garni.
- Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
- Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði
- Heiðarleiki og stundvísi
Góð afsláttarkjör af Icewear vörum, garni og fatnaði.













