ELKO
ELKO
ELKO

Hlutastarf í vefverslun ELKO

ELKO leitar að skipulögðum aðila í hlutastarf í einni stærstu vefverslun landsins. Starfið felur í sér tiltekt og afgreiðslu pantana auk eftirkaupaþjónustu og úrlausn erinda viðskiptavina.

Helstu verkefni

  • Vörutiltekt
  • Afgreiðsla á vefpöntunum
  • Úrlausn erinda
  • Eftirkaupaþjónusta til viðskiptavina

Hæfniskröfur

  • Íslensku- og enskukunnátta skilyrði
  • Framúrskarandi færni í samskiptum og rík þjónustulund
  • Stundvísi og áreiðanleiki
  • Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði í starfi
  • Hreint sakavottorð

Vinnutími

Vinnutími er frá 8:00-12:00 á virkum dögum og 9:00-17:00 á helgidögum.

Fríðindi í starfi

  • Árlegur líkamsræktarstyrkur
  • Afsláttarkjör hjá ELKO, Krónunni og N1
  • Aðgangur að velferðarpakka ELKO
  • Aðgangur að fræðslupakka ELKO og Akademias
  • Öflugt félagslíf með reglulegum viðburðum
  • Starfsmannafélag með góðum vildarkjörum
  • Niðurgreiddur hádegismatur

ELKO leggur mikið upp úr góðri fræðslu og nýliðamóttöku fyrir sitt starfsfólk og vann ELKO menntaverðlaun atvinnulífsins árið 2024.

ELKO starfrækir vottað jafnlaunakerfi og hefur skuldbundið sig til að greiða jöfn laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Elvar Orri ([email protected]), dreifingarstjóri.

Umsóknarfrestur er til og með 5. september.

Hvetjum öll þau sem uppfylla hæfniskröfur að sækja um

Utworzono ofertę pracy21. August 2025
Termin nadsyłania podań5. September 2025
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Kompetencje na wysokim poziomie
AngielskiAngielski
Wymagane
Kompetencje na wysokim poziomie
Lokalizacja
Skarfagarðar 2, 104 Reykjavík
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe