

Hlutastarf eftir hádegi
Leikskólinn Sumarhús, nýr leikskóli í Helgafellslandi í Mosfellsbæ, leitar að ábyrgum og jákvæðum einstakling til að sinna skilastöðu og almennri aðstoð eftir hádegi. Starfið hentar sérstaklega vel fyrir þá sem eru í námi og vilja samhliða vinna með börnum í hlýlegu og faglegu umhverfi.
Leikskólinn er fimm deilda og gert ráð fyrir 150 börnum á aldrinum 1-5 ára og mun skólinn starfa eftir heilsustefnunni þar sem heilsa og vellíðan nemanda, starfsfólks og samfélagsins alls verður í forgrunni.
Við leitum að einstaklingi sem
- Er áreiðanlegur og stundvís
- Hefur áhuga á að vinna með börnum
- Er jákvæður og samvinnufús
- Vill vinna með skóla
-
Vinnur að uppeldi og menntun barnanna, fylgist með velferð þeirra og hlúir að þeim andlega og líkamlega
-
Vinnutími er eftir hádegi og skilastaða (tekur þátt í að loka leikskólanum dag hvern)
-
Almenn aðstoð eftir þörfum
- Reynsla af leikskólastarfi er kostur enm ekki skilyrði
-
Framúrskarandi samskiptahæfni, lausnamiðuð hugsun og jákvætt viðmót
-
Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði í starfi
-
Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
- Samgöngustyrkur
- Líkamsræktarstyrkur
- Sundkort
- 36 stunda vinnuviku er náð með 38 stunda vinnuframlagi vikulega. Starfsfólk safnar því tveimur stundum vikulega sem nýttir er sem frí á skráningardögum leikskóla Mosfellsbæjar












