

Hjúkrunarfræðingur óskast á hjúkrunarheimilið Móberg
Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU) leitar að hjúkrunarfræðingi til starfa á hjúkrunarheimilið Móberg á Selfossi. Ef þú vilt vinna í umhyggjusömu og faglegu umhverfi þar sem velferð íbúa er í forgrunni, þá er þetta tækifærið fyrir þig!
HSU veitir heilsugæslu-, sjúkrahús- og öldrunarþjónustu ásamt því að annast sjúkraflutninga. Þjónustusvæðið nær frá Þorlákshöfn í vestri til Hafnar í austri.
Hlutverk HSU er að móta, þróa og útfæra heilbrigðisþjónustu í umdæminu og tryggja íbúum Suðurlands og öðrum þjónustuþegum jafnan aðgang að bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á hverju sinni.
Þjónustumarkmið HSU byggja á gildum okkar um fagmennsku, virðingu og samvinnu. Velferð og þarfir þjónustuþega eru okkar leiðarljós.
-
Um er að ræða fjölbreytt starf með skemmtilegu og metnaðarfullu starfsfólki.
-
Mikið er lagt upp úr góðu þverfaglegu samstarfi þar sem fagmennska, umhyggja og virðing fyrir skjólstæðingum og fjölskyldum þeirra er höfð að leiðarljósi.
-
Um er að ræða vaktavinnu sem felur í sér morgun- og kvöldvaktir, auk möguleika á bakvöktum ef það hentar. Helgarvinna er samkvæmt samkomulagi við deildarstjóra.
-
Heimilið hefur fimm almennar hjúkrunareiningar þar sem 12 einstaklingar búa á hverri einingu.
-
Starfsleyfi landlæknis.
-
Hjúkrunarnám frá viðurkenndri menntastofnun.
-
Góð íslenskukunnátta í töluðu og rituðu máli.
-
Góð hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði, áreiðanleiki og síðast en ekki síst jákvætt viðhorf.
islandzki










