Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Hlíðum

Langar þig að koma og starfa á nýrri og glæsilegri heilsugæslustöð?

Heilsugæslan Hlíðum óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing til starfa. Um er að ræða 100% tímabundið starf til eins árs, með möguleika á áframhaldandi starfi hjá heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.

Við leitum að hjúkrunarfræðingi sem hefur áhuga á fjölbreyttum, krefjandi og skemmtilegum verkefnum í starfi sem er í stöðugri þróun. Ef þú ert að leita að starfi þar sem enginn dagur er eins þá hvetjum við þig til þess að sækja um.

Á Heilsugæslunni Hlíðum starfar sérhæft og metnaðarfullt starfsfólk í hvetjandi og áhugaverðu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði fær að njóta sín. Á stöðinni ríkir góður starfsandi og áhersla er lögð á náið samstarf fagstétta og teymisvinnu.

Ný og spennandi tækifæri eru til starfsþróunar innan HH, þar sem hjúkrunarfræðingum stendur til boða að þróa sig í starfi s.s. starfsþróunarár og sérnám í heilsugæsluhjúkrun. Heilsugæslan Hlíðum leggur áherslu á einstaklingsmiðaða aðlögun og stuðning við nýja starfsmenn.

Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).

Helstu verkefni og ábyrgð

Megin starfssvið er ung- og smábarnavernd ásamt hjúkrunarmóttöku og skólahjúkrun

Markmið ung- og smábarnaverndar er að efla heilsu, vellíðan og þroska ungra barna með reglulegum heilsufarsskoðunum ásamt stuðningi og heilbrigðisfræðslu til fjölskyldna þeirra. Áhersla er lögð á stuðning við fjölskylduna. Fylgst er með þroska barna frá fæðingu til skólaaldurs.

Starfssvið í móttöku er mjög víðtækt, allt frá símaráðgjöf til bráðaþjónustu. Hjúkrunarmóttakan sinnir fólki á öllum aldri og skiptist í opna móttöku, bókaða móttöku og símaráðgjöf. Í opinni móttöku er tekið á móti bráðaerindum, í bókaðri móttöku er tekið á móti erindum sem eru ekki bráð s.s. ferðamannaheilsuvernd og sárameðferð.

Skólahjúkrunarfræðingur sinnir reglubundnu heilbrigðiseftirliti nemenda og fræðslu. Auk þess sinnir hann öðrum viðfangsefnum sem upp kunna að koma í samstarfi við annað starfsfólk skólans og foreldra eftir þörfum hverju sinni.    

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Reynsla af fjölskylduhjúkrun æskileg
  • Reynsla af skóla- og/eða heilsugæsluhjúkrun æskileg
  • Áhugi og vilji til að vinna með börnum og fjölskyldum
  • Áhugi á forvarnar- og heilsueflingarstarfi
  • Þekking á réttindum barna
  • Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
  • Reynsla og áhugi á teymisvinnu
  • Reynsla af bráða- og slysamóttöku er kostur
  • Mikil samskiptahæfni og sveigjanleiki
  • Íslenskukunnátta og góð almenn tölvukunnátta
Fríðindi í starfi
  • Heilsustyrkur
  • Samgöngustyrkur
Utworzono ofertę pracy29. January 2026
Termin nadsyłania podań12. February 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Skógarhlíð 18, 105 Reykjavík
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.PielęgniarkaPathCreated with Sketch.Pozytywne nastawieniePathCreated with Sketch.AmbicjaPathCreated with Sketch.SumiennośćPathCreated with Sketch.Samodzielność w pracyPathCreated with Sketch.Organizacja
Środowisko pracy
Zawody
Tagi zawodowe