

Hjúkrunarfræðingur á Sjúkradeild á Ísafirði
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing til starfa á sjúkradeild á Ísafirði. Um er að ræða 80-100% starf í vaktavinnu.
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða er metnaðarfullur vinnustaður þar sem um 270 manns starfa á fjórum megin starfsstöðvum. Á stofnuninni er unnið markvisst að góðum starfsanda og lögð er áhersla á traust og jákvæðni í samskiptum.
Boðið er upp á góða aðlögun í upphafi starfs og aðstoð við öflun húsnæðis. Ráðið verður frá 1. september 2025 eða eftir samkomulagi.
Hjúkrunarfræðingur sinnir almennum hjúkrunarstörfum á blandaðri sjúkradeild. Deildin sinnir auk þess sængurkonum og nýburum utan dagvinnu ljósmóður, annast göngudeild fyrir krabbameinslyfjagjafir og aðrar sérhæfðar lyfjagjafir auk þess að aðstoða við slysamóttöku á slysadeild utan dagvinnutíma. Hér er gott tækifæri fyrir reynslumikinn hjúkrunarfræðing sem langar að breyta um umhverfi. Þetta er einnig kjörin staða fyrir þá sem vilja öðlast fjölbreytta reynslu í alhliða hjúkrun.
Á deildinni starfar öflugur hópur um 25 hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða og er þar góður starfsandi sem einkennist af samheldni, vináttu, metnaði og gleði.
-
Íslenskt hjúkrunarleyfi
-
Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
-
Jákvæðni og góð hæfni í mannlegum samskiptum











