Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS)
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS)
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS)

Hjúkrunardeildarstjóri á nýja skammtímadeild á Hlévangi í Reykjanesbæ

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir að ráða til starfa hjúkrunardeildarstjóra á Hlévang.

Hlévangur er ný deild innan HSS sem áætlað er að opni á seinni hluta árs 2026. Deildin verður 24 rýma skammtímadeild fyrir einstaklinga sem hafa ekki heilsu til að búa heima í sjálfstæðri búsetu.

Hluti af verkefnum deildarstjóra verður að taka þátt í undurbúningi og opnun Hlévangs, þar með talið mótun starfseminnar og stefnu í samvinnu með framkvæmdastjórn HSS.

Um er að ræða einstakt tækifæri til að taka þátt í þeirri uppbyggingu sem á sér stað í heilbrigðisþjónustu á Suðurnesjum.

Mikilvægt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Starfar í samræmi við ábyrgðarsvið stjórnenda á HSS 
  • Ber faglega ábyrgð á þjónustu, skipulagi og þróun deildar
  • Ber ábyrgð á mannauðsmálum deildar  
  • Stuðlar að öflugri samvinnu innan og utan deildarinnar
  • Ber ábyrgð á rekstrarkostnaði deildarinnar sé innan heimilda 
  • Sinnir fræðslu til nemenda og samstarfsfólks
  • Ábyrgur fyrir skráningu og innleiðingu klínískra leiðbeininga að starfsemi deildarinnar
  • Ábyrgur fyrir að byggja upp öryggismenningu á deildinni  
  • Skipuleggur og tekur þátt í þverfaglegu samstarfi innan og utan stofnunar 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt starfsleyfi sem hjúkrunarfræðingur  
  • Viðbótarmenntun sem nýtist í starfi er kostur
  • Stjórnunarreynsla og þekking á mannauðsmálum er kostur
  • Reynsla og áhugi á þjónustu við aldraða
  • Hæfni til að leiða uppbyggingu, breytingar og umbætur
  • Reynsla og þekking af gæðastarfi er kostur 
  • Samskiptahæfni  
  • Skipulögð og nákvæm vinnubrögð  
  • Góð kunnátta í íslensku er skilyrði
  • Frumkvæði til verka og metnaður í starfi
Utworzono ofertę pracy10. June 2026
Termin nadsyłania podań26. June 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
AngielskiAngielski
Wymagane
Kompetencje na wysokim poziomie
Lokalizacja
Hlévangur 230 Reykjanesbær
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe