Hamraskóli - laus staða stuðningsfulltrúa

Stuðningsfulltrúi - Hamraskóli

Hamraskóli

Lausar eru til umsóknar 75% staða stuðningsfulltrúa við Hamraskóla, Dyrhömrum 9 í Grafarvogi.

Stuðningsfulltrúi aðstoðar kennara og þroskaþjálfa við að sinna einum eða fleiri nemendum sem þurfa sérstaka aðstoð. Starfið miðar fyrst og fremst að því að auka færni og sjálfstæði nemenda, félagslega, námslega og í daglegum athöfnum.

Viðkomandi þarf að geta hafið störf í lok ágúst

Helstu verkefni og ábyrgð:

Að vera kennara til aðstoðar við að sinn einum eða fleiri nemendum sem þurfa sérstaka aðstoð.
Að aðstoða nemendur eftir þörfum hvers og eins við athafnir daglegs lífs.
Að auka færni og sjálfstæði nemenda, félagslega, námslega og í daglegum athöfnum.

Hæfniskröfur:

- Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af því að vinna með börnum í grunn- eða leikskóla.
- Hæfni í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
- Fagmennska í vinnubrögðum.
- Reynsla og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
- Góð íslenskukunnátta.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar.

Starfshlutfall 75%

Umsóknarfrestur 16.10. 2024

Ráðningarform

Timabundin ráðning

Númer auglýsingar

Nafn sviðs:

Skóla- og frístundasvið

Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Bergsdóttir í síma 664-8206 og tölvupósti anna.bergsdottir@rvkskolar.is

Hamraskóli

Dyrhömrum 9

112 Reykjavík

Utworzono ofertę pracy1. October 2024
Termin nadsyłania podańŻaden
Znajomość języków
islandzkiislandzkiKompetencje na wysokim poziomie
Lokalizacja
Dyrhamrar 9, 112 Reykjavík
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.Pozytywne nastawieniePathCreated with Sketch.Samodzielność w pracyPathCreated with Sketch.Punktualność
Zawody
Oznaczenia