Tjarnarskóli ehf
Tjarnarskóli ehf

Grunnskólakennari á unglingastigi

Við í Tjarnarskóla viljum bæta við kennara í mjög samhentan hóp. Þar sem skólinn er lítill þarf hver kennari að annast fleiri en eina kennslugrein. Þær námsgreinar sem kæmu aðallega til greina eru: Enska og stærðfræði. Náttúrufræði og samfélagsgreinar koma einnig til greina.

Starfsandinn er glaðlegur og vinsamlegur en einkennisorðin okkar eru: ,,Lítill skóli með stórt hjarta“ og ,,Allir eru einstakir“. Kennarar og skólastjórnendur vinna náið saman og styðja hver annan í starfi.

Tjarnarskóli er sjálfstætt starfandi grunnskóli sem var stofnaður árið 1985 og er til húsa í hjarta borgarinnar, við Reykjavíkurtjörn. Að öllu jöfnu eru um 50 – 60 nemendur, í þremur bekkjardeildum. Í skólanum hefur verið afar lítil starfsmannavelta.

Heimasíðan okkar er: www.tjarnarskoli.is

Áhugasamir sendi inn umsókn og ferilskrá á [email protected]. Fyrirspurnir má senda á sama netfang.

Utworzono ofertę pracy25. April 2025
Termin nadsyłania podańŻaden
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Kompetencje na wysokim poziomie
Lokalizacja
Lækjargata 14B, 101 Reykjavík
Rodzaj pracy
Zawody
Oznaczenia