Grænmetis- og rekstrarvörulager í Reykjanesbæ
Skólamatur óskar eftir að ráða starfsmann á lager þar sem dreifing á meðlæti og rekstrarvörum fer fram.
Starfsstöð er að Iðavöllum 1 í Reykjanesbæ.
Starfssvið:
· Dreifing á grænmeti, ávöxtum og öðru meðlæti
· Dreifing á rekstrarvörum
· Dreifing á síðdegishressingu
· Frágangur á lager
· Þrif og frágangur á vinnusvæði
· Önnu tilfallandi verkefni
Vinnutíminn er á virkum dögum frá kl. 7:00 til 15:00.
Hæfniskröfur:
· Reynsla sem nýtist í starf
· Jákvæðni og góð samskiptahæfni
· Grunn þekking á tölvuvinnslu
· Góð íslenskukunnátta skilyrði
Umsækjendur eru beðnir að skila inn ferilskrá með upplýsingum um reynslu/menntun og fyrri störf.
Öll kyn eru hvött til að sækja um starfið.
Óskað er eftir að viðkomandi geti hafið störf strax.
Fyrirspurnir um starfið berist á radningar@skolamatur.is.
Skólamatur ehf. er fjölskylduvænt fyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu og framreiðslu á máltíðum fyrir mikilvægasta fólkið.