Vestmannaeyjabær
Vestmannaeyjabær

Garðyrkjustjóri í þjónustumiðstöðina

Vestmannaeyjabær auglýsir laust til umsóknar starf garðyrkjustjóra í þjónustumiðstöðina. Um er að ræða 100 % starf sem unnið er á dagvinnutíma frá kl. 8 - 16 virka daga.

Leitað er að metnaðarfullum og drífandi aðila í starf garðyrkjustjóra sveitarfélagsins. Starfið felur í sér að móta ásýnd bæjarins, viðhalda grænum svæðum og stýra fjölbreyttum árstíðabundnum verkefnum utandyra sem innandyra.

Starfið er á umhverfis- og framkvæmdasviði með aðsetur í þjónustumiðstöðinni.

Umsækjendur eru beðnir um að skila inn umsókn á Mínar síður. Með umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá með nöfnum tveggja umsagnaraðila. Einnig skal fylgja greinargerð með rökstuðningi fyrir hæfni í starfi og ástæðu umsóknar.

Umsóknarfrestur er til og með 27. apríl 2026. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.

Nánari upplýsingar veitir Brynjar Ólafsson framkvæmdastjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs [email protected].

Hvatning er til allra áhugasama einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr 150/2020.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með uppbyggingu og viðhaldi opinna svæða innan bæjarlandsins. 

  • Umsjón með sumarstörfum og vinnuskóla. 

  • Umsjón og skipulag með gróðursetningu vor, sumar og haustblóma. 

  • Gerð og uppfærsla umhirðuáætlana og eftirlit með umhirðuverkefnum. 

  • Ráðgjöf til forstöðumanna stofnana bæjarins varðandi almenna umhirðu lóða, skipulag, gróður og annað sem að hans sérþekkingu lýtur. 

  • Verkefni í þjónustumiðstöð utan annatíma garðyrkju eru verklegar framkvæmdir, aðgerðir vegna veðurs, almenn störf við viðhald, endurnýjun og umhirðu opinna svæða. 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Garðyrkju- eða skrúðgarðyrkjumenntun. 

  • Reynsla af sambærilegu starfi. 

  • Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum og þjónustumiðað viðhorf. 

  • Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og skipulagshæfni. 

  • Reynsla af verkefnastjórnun er kostur. 

Utworzono ofertę pracy9. April 2026
Termin nadsyłania podań27. April 2026
Znajomość języków
AngielskiAngielski
Opcjonalnie
Kompetencje na wysokim poziomie
islandzkiislandzki
Wymagane
Kompetencje na wysokim poziomie
Lokalizacja
Heiðarvegur 14, 900 Vestmannaeyjar
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.Ogrodnictwo
Zawody
Tagi zawodowe