Fagkaup ehf
Fagkaup ehf
Fagkaup ehf

Gæðastjóri Fagkaupa

Fagkaup leitar að öflugum Gæðastjóra.

Hlutverk gæðastjóra er að leiða gæða-, öryggis- og sjálfbærnimál félagsins til að ná þeim árangri sem stefnt er að, setja stefnutengd markmið, aðgerðaráætlanir og stýra umbótum

Starfið felur í sér náið samstarfs við starfsfólk fyrirtækisins og er mikilvægt að viðkomandi búi yfir hæfni til að leiða saman hópa og hugmyndir sem stuðla að framþróun verkefna

Hér er um að ræða frábært tækifæri fyrir metnaðarfullan einstakling sem er tilbúinn að taka áskorunum og halda áfram uppbyggingu innviða og stefnumörkun Fagkaupa

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á gæðastjórnunarkerfi Fagkaupa í samræmi við lög, reglugerðir og staðla
  • Leiða teymi sérfræðinga í málaflokkunum
  • Vegferð málaflokka, framkvæmd stefnu í hverjum málaflokki, aðgerðaáætlun og eftirfylgni verkefna
  • Ábyrgð á gæðaskjölum og hlutverk gagnvart gæðakerfinu
  • Umbætur í ferlum, kerfum og gögnum tengt málaflokkunum. Rýni, innleiðing og uppfærsla gæðaskjala.
  • Stefnumótun, markmiðasetning, mælingar, aðgerðir og stöðugar umbætur
  • Stuðningur og ráðgjöf til stjórnenda í málaflokkunum
  • Ráðgjöf og fræðsla til starfsfólks varðandi gæða,- öryggis- og sjálfbærnimál
  • Eftirfylgni með lögum, reglugerðum og stöðlum sem leiða til breytinga á gæðakerfi
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi
  • Þekking og reynsla af ISO-9001 staðli, öryggis- og sjálfbærnimálum
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og jákvætt viðmót
  • Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli
  • Skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
  • Metnaður til að ná árangri
  • Gagnalæsi og góð tölvukunnátta
  • Rík greiningarhæfni og hæfni til að setja fram upplýsingar á skilmerkilegan hátt
  • Drifkraftur, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Fríðindi í starfi
  • Niðurgreiddur hádegismatur
  • Samgöngustyrkur
  • Líkamsræktarstyrkur
  • Jafnlaunavottun

Að auki bjóðum við:

  • Góðan vinnustað þar sem lögð er rækt við vellíðan og vöxt starfsfólks
  • Frábæra vinnufélaga og góðan starfsanda
  • Árlega heilsufarsskoðun og heilsueflingu
  • Afsláttarkjör af vörum félagsins
  • Ýmsa viðburði á vegum fyrirtækisins ásamt virku starfsmannafélagi
  • Áhugavert og fjölbreytt starf í sterku fyrirtæki í örum vexti
  • Gott tækifæri til að hafa áhrif á skipulag og stefnu í málaflokknum
  • Faglegt og samheldið starfsumhverfi
Utworzono ofertę pracy14. March 2026
Termin nadsyłania podań31. March 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
AngielskiAngielski
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Klettagarðar 25, 104 Reykjavík
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.SumiennośćPathCreated with Sketch.OrganizacjaPathCreated with Sketch.Strategiczne planowaniePathCreated with Sketch.Zarządzanie projektem
Środowisko pracy
Zawody
Tagi zawodowe