Embla Medical | Össur
Embla Medical (Össur) var stofnað á Íslandi árið 1971 og er nú orðið alþjóðlegt heilbrigðistæknifyrirtæki sem hannar og framleiðir stoðtæki, spelkur og stuðningsvörur með það að markmiði að bæta hreyfanleika fólks og gera því kleift að lifa lífinu án takmarkana.
Við erum leiðandi afl á heimsvísu; hjá okkur starfa um 4000 starfsmenn í yfir 30 löndum. Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru á Íslandi en starfsstöðvar víða um heim sinna vaxandi markaði og félagið er skráð á hlutabréfamarkað í Danmörku.
Mannauðurinn er okkur dýrmætur. Við erum hátæknifyrirtæki og árangur okkar er undir reyndu og hæfileikaríku fólki kominn. Við leggjum ríka áherslu á að laða að okkur hæft starfsfólk sem er tilbúið að leggja sig fram og sýnir frumkvæði.
Framleiðslustarf í Bionic deild
Langar þig að vera hluti af spennandi og sterkri liðsheild innan Bionic framleiðslu Össurar?
Við leitum að liðsauka við framleiðslu á hátæknivörum fyrir viðskiptavini Össurar um allan heim. Framleiðslan okkar er spennandi umhverfi þar sem framþróun er í hávegum höfð. Lögð er áhersla á öruggt vinnuumhverfi, stöðugar umbætur og starfsfólki gefið tækifæri til að hafa áhrif á starfsumhverfið.
Vinnutíminn er frá 7-15 eða 8-16 alla virka daga og viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Við hvetjum fólk til að sækja um starfið óháð kyni og uppruna.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Eiga gott með að vinna í teymi og sjálfstætt
- Stundvísi
- Heiðarleiki
- Góð íslensku og/eða enskukunnátta
- Reynsla eða þekking á rafeindabúnaði kostur
Fríðindi í starfi
- Mötuneyti
- Sturtuaðstaða
- Líkamsræktarstyrkur
- Samgöngustyrkur
- Hjólageymsla
Utworzono ofertę pracy23. September 2024
Termin nadsyłania podań7. October 2024
Znajomość języków
islandzkiDoskonale
AngielskiDoskonale
Lokalizacja
Grjótháls 1-3 1R, 110 Reykjavík
Rodzaj pracy
Kompetencje
UczciwośćPunktualność
Zawody
Oznaczenia
Więcej ofert pracy (3)
Podobne oferty pracy (12)
Starfsmaður í skiltagerð
Fjölprent ehf
Laghentur húsvörður
Asparfell 2-12 húsfélag
Smiðir og handlagnir einstaklingar
Kambar Byggingavörur ehf
Rafvirkjar
VHE
Floor cleaner
AÞ-Þrif ehf.
Starfsmaður óskast á Smurstöðina Laugavegi 180.
TGA ehf.(smurstöðin Laugavegi 180)
Tímabundin vinna / Temporary job
Freyja
Hlaupari - Akranes
Terra hf.
Rafvirki / Rafeindavirki til starfa í Tæknideild
Nortek
Starfsmaður í textílflokkun
SORPA bs.
Rafvirki
Hitatækni ehf
Liðsfélagi á vaktir við vélgæslu
Lýsi