Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Framkvæmdastjóri lækninga

Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU) auglýsir laust til umsóknar starf framkvæmdastjóra lækninga. Leitað er eftir kraftmiklum, metnaðarfullum og farsælum stjórnenda. Framkvæmdastjóri lækninga situr í framkvæmdastjórn HSU og heyrir undir forstjóra. Starfshlutfallið er 100% og er ráðið í starfið frá og með 1. júní nk. eða eftir samkomulagi.

Starfið felur í sér faglega forystu, stefnumótun og þróun læknisþjónustu í einu stærsta og víðfeðmasta heilbrigðisumdæmi landsins. Framkvæmdastjóri lækninga ber faglega ábyrgð á læknisþjónustu stofnunarinnar auk þess sem hann ber ábyrgð á klínísku sviði.

HSU veitir víðtæka og samþætta heilbrigðisþjónustu um allt Suðurland, þar á meðal heilsugæsluþjónustu, sjúkrahús- og göngudeildarþjónustu, hjúkrunarþjónustu auk sjúkraflutninga. Áhersla er lögð á jafnt aðgengi, öryggi, gæði þjónustu og öflugt þverfaglegt samstarf.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ber ábyrgð á að móta og leiða faglega stefnu læknisþjónustu í samræmi við markmið HSU þvert á stofnunina

  • Ber ábyrgð á klínísku sviði, þ.m.t. rekstri, mannauði og samhæfingu þjónustu, með það að markmiði að tryggja heildstæða og skilvirka starfsemi samhliða sterkri faglegri forystu

  • Ber ábyrgð á að tryggja gæði, öryggi og samræmingu læknisþjónustu á öllum starfseiningum HSU

  • Stuðlar að klínískum leiðbeiningum og stöðluðum verklagsreglum

  • Eflir faglega þróun og stuðlar að öflugri starfsþróun og menntun

  • Tekur virkan þátt í stefnumótun, rekstri og þróun stofnunarinnar sem hluti af framkvæmdastjórn

  • Ber ábyrgð á samvinnu milli fagsviða og heilbrigðisstétta og stuðlar að virkri teymisvinnu

  • Vera faglegur ráðgjafi lækna, stjórnanda og er tengiliður við aðrar heilbrigðisstofnanir

  • Stuðlar að nýsköpun, umbótum og skilvirkni í þjónustu

  • Styður við rannsóknir, kennslu og þróunarstarf

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Læknisfræðimenntun og sérfræðileyfi er skilyrði

  • Víðtæk reynsla af klínísku starfi er skilyrði

  • Reynsla af stjórnunarstörfum og/eða leiðtogahlutverki er skilyrði

  • Þekking og reynsla af rekstri og skipulagi heilbrigðisþjónustu er æskileg

  • Jákvætt viðhorf og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum

  • Leiðtogahæfileikar og geta til að hrinda breytingum í framkvæmd

  • Frumkvæði, áræðni og skipulagshæfni

  • Mjög góð íslenskukunnátta og góð enskukunnátta

  • Hæfni í tjáningu í ræðu og riti

  • Brennandi áhugi á þróun þjónustu Heilbrigðisstofnunar Suðurlands

  • Vilji til að helga sig sýn og gildum HSU

Utworzono ofertę pracy10. April 2026
Termin nadsyłania podań27. April 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
AngielskiAngielski
Wymagane
Kompetencje na wysokim poziomie
Lokalizacja
Árvegur 161836, 800 Selfoss
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe