Blindrafélagið
Blindrafélagið

Framkvæmdastjóri

Blindrafélagið óskar eftir að ráða drífandi og metnaðarfullan leiðtoga í starf framkvæmdastjóra Blindrafélagsins. Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri og vinnur náið með stjórn þess að stefnumótun og þróun starfseminnar.

Framkvæmdastjóri gegnir lykilhlutverki í samskiptum við stjórnvöld, samstarfsaðila, styrktaraðila og aðra hagaðila. Um er að ræða fjölbreytt og ábyrgðarmikið starf þar sem reynir á leiðtogahæfni, frumkvæði, gott samstarf og góða samfélagslega sýn.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Yfirumsjón með daglegum rekstri og stjórnun félagsins.
  • Ábyrgð á að starfsemi félagsins sé í samræmi við stefnu, markmið og ákvarðanir stjórnar.
  • Taka virkan þátt í mótun framtíðarsýnar og stefnu félagsins og fylgja stefnumarkandi verkefnum eftir.
  • Bera ábyrgð á fjárhagslegum rekstri, gerð rekstraráætlana og eftirfylgni með fjárhagsáætlunum.
  • Yfirumsjón með bókhaldi, uppgjörum, greiðsluflæði, innheimtu og samskiptum við endurskoðendur.
  • Leiða fjáröflun félagsins í samvinnu við stjórn og þróa ný tækifæri til tekjuöflunar og samstarfs.
  • Ábyrgð á mannauðsmálum, þar á meðal ráðningum, starfsþróun, starfsmannasamtölum og starfsumhverfi.
  • Yfirumsjón með rekstri skrifstofu, upplýsingatækni, húsnæði og annarri aðstöðu félagsins.
  • Gæta hagsmuna félagsins og byggja upp öflug tengsl við stjórnvöld, stofnanir, félagasamtök, atvinnulíf og aðra samstarfsaðila.
  • Stuðla að sýnileika félagsins og öflugri hagsmunagæslu fyrir blint og sjónskert fólk.
  • Undirbúa mál fyrir stjórn og tryggja vandaða upplýsingagjöf um rekstur og stöðu verkefna.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af stjórnun, rekstri og mannauðsmálum er nauðsynleg.
  • Þekking og reynsla af fjármálum, áætlanagerð og rekstrareftirliti.
  • Þekking á málefnum fatlaðs fólks, aðgengi og réttindabaráttu.
  • Framúrskarandi leiðtoga- samskipta og samstarfshæfni.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
  • Góð tölvukunnátta, reynsla af DK bókhaldskerfi er kostur.
  • Frumkvæði, skipulagshæfni, sjálfstæði og lausnamiðuð hugsun.

Um Blindrafélagið

Blindrafélagið, samtök blindra og sjónskertra á Íslandi, er samfélagslegt afl – mannréttindasamtök – sem berst fyrir því að blindir og sjónskertir einstaklingar geti lifað sjálfstæðu, innihaldsríku og ábyrgu lífi, og að þeim sé tryggður jafn réttur og jöfn tækifæri til ábyrgrar, virkrar og viðurkenndrar þátttöku í öllum þáttum samfélagsins.

Umsóknarfrestur er til og með 6. október 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigríður Svava Sandholt ([email protected]) í síma 511 1225.

Utworzono ofertę pracy21. September 2026
Termin nadsyłania podań6. October 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
AngielskiAngielski
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Hamrahlíð 17, 105 Reykjavík
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.Ogólne umiejętności obsługi komputeraPathCreated with Sketch.DKPathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.Zdolności kierowniczePathCreated with Sketch.Interakcje międzyludzkiePathCreated with Sketch.Samodzielność w pracyPathCreated with Sketch.Organizacja
Zawody
Tagi zawodowe