

Frábærar aðstoðarkonur óskast
Ég er 55 ára gömul kona að leita mér að persónulegum aðstoðarkonum.
Konur yfir 30 ára sérstaklega hvattar til að sækja um.
Starfið felst í að aðstoða mig við öll þau verkefni sem ég tek mér fyrir hendur. Ýmsar vaktir í boði, dag- og kvöldvaktir. Ég þarf aðstoð við allar athafnir daglegs lífs:
- Klæða mig
- Koma mér milli staða
- Eldhússtörf o.s.frv.
Í frítíma mínum hef ég gaman að bakstri, útivist, fara í neglur, kíkja í leikhús og á kaffihús, göngutúra og ferðast.
Aðstoðarkonur mínar þurfa vera íslenskumælandi, með bílpróf, kunna að elda og baka og vera heilsuhraustar. Ég er með mikið kattaofnæmi þannig umsækjandi má ekki eiga kött eða vera í kringum ketti. Reynsla af sambærilegum störfum er kostur en ekki skilyrði.
Starfið byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf, en hægt er að lesa nánar um hugmyndafræðina og notendastýrða persónulega aðstoð á NPA miðstöðin - NPA miðstöðin. Laun eru samkvæmt kjarasamningi NPA miðstöðvarinnar og Eflingar.





















