Síminn
Síminn
Síminn

Forstöðumaður sölu og þjónustuvers Símans

Síminn leitar að reynslumiklum og framsýnum leiðtoga til að leiða sölu- og þjónustuver félagsins. Um er að ræða lykilhlutverk þar sem viðkomandi mun bera ábyrgð á þróun og rekstri á sölu- og þjónustuveri Símans með áherslu á framúrskarandi þjónustu, árangursríka sölu og stöðugar umbætur. Viðkomandi mun leiða öflugt teymi stjórnenda og gegna lykilhlutverki í að tryggja framúrskarandi upplifun viðskiptavina og árangur starfseminnar.

Starfið heyrir beint undir framkvæmdastjóra einstaklingssviðs og felur í sér náið samstarf við stjórnendateymi Símans.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Móta og innleiða árangursdrifna stefnu sem sameinar þjónustugæði, söluárangur og stöðugar umbætur
  • Greina tækifæri til þróunar og aukinnar skilvikirkni í sölu- og þjónustuferlum
  • Leiða umbreytinga- og þróunarverkefni með skýrri markmiðasetningu, mælikvörðum og eftirfylgni
Við leitum að einstaklingi sem hefur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Umfangsmikla reynslu af stjórnun viðskiptadrifinnar starfsemi, svo sem sölu, þjónustu eða sambærilegs reksturs
  • Sýndan árangur af rekstri, stefnumótun og innleiðingu breytinga
  • Umtalsverða reynslu í að leiða teymi, byggja upp árangursdrifna menningu og ná settum markmiðum
  • Sterkan viðskiptaskilning ásamt framúrskarandi samskipta- og leiðtogahæfni
Fríðindi í starfi
  • Afslættir af vörum og þjónustu Símans
  • Rafmagnsbílastæði, hjólageymslur og búningsaðstaða
  • Aðgengi að velferðarþjónstu Heilsuverndar
  • Árlegur líkamsræktarstyrkur
  • Námsstyrkir
  • Samgöngustyrkur vegna vistvænna samgangna til og frá vinnu
  • Gleraugnastyrkur
Aðrar upplýsingar

Síðan 1906 hefur Síminn tengt heimili og fyrirtæki á Íslandi við umheiminn. Við leggjum áherslu á að veita einstaklingum og fyrirtækjum framúrskarandi lausnir byggðar á fyrsta flokks tækni með hraða, öryggi og þjónustu að leiðarljósi. Við byggjum á sterkri liðsheild og kunnum að meta jákvætt, árangursdrifið og lausnamiðað hugarfar. Síminn vill laða til sín framúrskarandi starfsfólk og lögð er mikil áhersla á vellíðan, hvetjandi umhverfi, tækifæri til vaxtar, jafnrétti og fjölbreytileika. 

Umsóknarfrestur er til og með 24. júní 2026.

Sótt er um starfið á vef Símans. Nánari upplýsingar veitir [email protected]

Við metum umsóknir jafnóðum og þær berast og boðum í viðtöl eftir því sem við á. Ráðið verður í starfið þegar við finnum rétta einstaklinginn í hlutverkið.

Í anda jafnréttisstefnu Símans hvetjum við öll kyn til að sækja um.

Utworzono ofertę pracy15. June 2026
Termin nadsyłania podań24. June 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
Lokalizacja
Ármúli 25, 108 Reykjavík
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.ProfesjonalnośćPathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.Zdolności kierowniczePathCreated with Sketch.Interakcje międzyludzkiePathCreated with Sketch.Samodzielność w pracy
Zawody
Tagi zawodowe