Íslandsbanki
Íslandsbanki
Íslandsbanki

Forstöðumaður Markaðslausna - Stafræn þróun og gagnastýring

Íslandsbanki leitar að forstöðumanni Markaðslausna til að leiða þróun og rekstur mikilvægra lausna sem styðja við verðbréfaviðskipti, gjaldeyrismiðlun, eignastýringu og aðra lykilþætti fjárfestingarstarfsemi bankans. Lausnirnar gegna lykilhlutverki í daglegum rekstri og þjónustu við einstaklinga, fyrirtæki, fjárfesta og lífeyrissjóði.

Þetta er stjórnendastarf þar sem viðkomandi ber ábyrgð á teymi sérfræðinga, mikilvægum viðskiptakerfum og því að tæknilausnir skili raunverulegu virði fyrir starfsemi bankans. Unnið er náið með viðskiptaeiningum, upplýsingatækni og öðrum lykilhaghöfum að þróun lausna sem sameina rekstraröryggi, skilvirkni og framþróun.

Forstöðumaður heyrir undir framkvæmdastjóra Stafrænnar þróunar og gagnastýringar og er hluti af stjórnendateymi sviðsins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Leiða fjölbreytt teymi sérfræðinga og bera ábyrgð á daglegum rekstri, þróun og árangri deildarinnar.
  • Bera ábyrgð á rekstri, stöðugleika, öryggi og áframhaldandi þróun mikilvægra viðskiptakerfa.
  • Móta framtíðarsýn fyrir kerfi og viðskiptaferla í samræmi við tæknistefnu bankans og taka þátt í forgangsröðun verkefna.
  • Stýra samskiptum, samningum og eftirfylgni gagnvart innlendum og erlendum tæknibirgjum.
  • Hafa yfirsýn yfir kostnað, samninga, fjárfestingar og líftíma lausna, þar á meðal áætlanagerð, frávikagreiningu og samþykkt reikninga.
  • Tryggja viðeigandi stjórnarhætti, áhættustýringu og rekstraröryggi í lausnum og ferlum deildarinnar.
  • Fylgja eftir og vinna úr athugasemdum innri og ytri úttektaraðila.
  • Sinna reglulegri upplýsingagjöf og taka þátt í hagræðingar- og umbótaverkefnum bankans.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af stjórnun sérfræðiteyma og hæfni til að skapa skýra stefnu, forgangsröðun og árangur í daglegu starfi.
  • Þekking og reynsla af rekstri, þróun eða innleiðingu mikilvægra upplýsingakerfa, hugbúnaðarlausna eða stafrænna breytingaverkefna.
  • Góð tæknileg yfirsýn og geta til að brúa bil milli viðskipta, rekstrar og tæknilegra lausna.
  • Hæfni til að vinna með flókin viðfangsefni, taka upplýstar ákvarðanir og halda utan um mörg mikilvæg verkefni samtímis.
  • Reynsla af birgja- og samningastjórnun, þar á meðal samskiptum við innlenda eða erlenda tæknibirgja.
  • Skipulögð, lausnamiðuð og ábyrg vinnubrögð með áherslu á rekstraröryggi, stjórnarhætti og eftirfylgni.
  • Mjög góð samskiptafærni og geta til að miðla upplýsingum skýrt til ólíkra hópa, bæði á íslensku og ensku.
  • Kostur: Framhaldsnám á háskólastigi. Að öðrum kosti 5–10 ára sérhæfð starfsreynsla og yfirgripsmikil þekking innan starfssviðsins.
Utworzono ofertę pracy24. September 2026
Termin nadsyłania podań8. October 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
AngielskiAngielski
Wymagane
Ojczysty
Lokalizacja
Hagasmári 3, 201 Kópavogur
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.DeterminacjaPathCreated with Sketch.RzetelnośćPathCreated with Sketch.PlanowaniePathCreated with Sketch.Zdolność do adaptacjiPathCreated with Sketch.MotywacjaPathCreated with Sketch.ProfesjonalnośćPathCreated with Sketch.BudżetowaniePathCreated with Sketch.Szybko się uczęPathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.UczciwośćPathCreated with Sketch.KreatywnośćPathCreated with Sketch.Pozytywne nastawieniePathCreated with Sketch.Zdolności kierowniczePathCreated with Sketch.Zarządzanie zasobami ludzkimiPathCreated with Sketch.Interakcje międzyludzkiePathCreated with Sketch.AmbicjaPathCreated with Sketch.RekrutacjaPathCreated with Sketch.NegocjacjePathCreated with Sketch.Samodzielność w pracyPathCreated with Sketch.OrganizacjaPathCreated with Sketch.Dział kadrPathCreated with Sketch.Strategiczne planowaniePathCreated with Sketch.ElastycznośćPathCreated with Sketch.Praca zespołowaPathCreated with Sketch.Plan zmianowyPathCreated with Sketch.SkrupulatnośćPathCreated with Sketch.Zarządzanie projektemPathCreated with Sketch.Zarządzanie projektami ITPathCreated with Sketch.praca pod presjąPathCreated with Sketch.Nastawienie do klientaPathCreated with Sketch.Cierpliwość
Zawody
Tagi zawodowe