

Flotastjóri
Pósturinn leitar að öflugum liðstyrk til að hafa yfirumsjón með bíla-, rafhjóla- og tækjaflota fyrirtækisins.
Markmið starfsins er að tryggja hagvæma nýtingu og öruggan rekstur flotans.
Óskað er eftir skipulögðum og lausnamiðuðum einstaklingi með áhuga og þekkingu á ökutækjum. Sjálfbærni er samofin menningu Póstsins og mun starfsmaðurinn sinna upplýsingagjöf um sjálfbærni flotans, fylgjast náið með nýjungum á markaði og innleiðingu lausna sem fellur undir starfssviðið.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Rekstraráætlanir og eftirfylgni með þeim
- Umsjón með daglegum rekstri bíla, rafmagnshjóla og tækjabúnaðar
- Samskipti við verkstæði, bílaleigur og birgja
- Eftirlit með KPI mælikvörðum og skýrslugerð
- Þátttaka í sjálfbærni starfi, umbótaverkefnum og innleiðingu nýrra lausna og verkferla
- Mannauðsmál
Menntunar- og hæfnikröfur:
- Menntun sem nýtist í starfi t.d. vörustjórnun, iðnfræði eða rekstrarmenntun
- Haldbær reynsla og þekking á viðhaldi og rekstri ökutækja er skilyrði
- Frumkvæði, sjálfstæði, skiplagshæfni og yfirsýn
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum, reynsla af teymisvinnu og sterk öryggisvitund
- Meirapróf er kostur
- Góð tölvufærni, þekking á flotastýringarkerfi er kostur
- Góð íslensku og ensku kunnátta í rituðu og töluðu máli
Af hverju Pósturinn?
Hjá Póstinum starfar lausnamiðað fólk sem tekur fagnandi á móti síbreytilegum áskorunum þar sem liðsheild, þjálfun og góður starfsandi er í forgrunni. Við erum jafnlaunavottað fyrirtæki, leggjum áherslu á sjálfbærni og höfum uppfyllt öll markmið Grænna skrefa.
Umsóknarfrestur er til og með 18. maí 2025.
Umsóknum skulu fylgja ferilskrá og kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni í starfið. Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðmundur Karl Guðjónsson, forstöðumaður útkeyrsludeildar, í netfanginu [email protected]













