Flataskóli
Flataskóli
Flataskóli

Flataskóli leitar að deildarstjóra

Viltu taka þátt í að leiða metnaðarfullt skólastarf þar sem velferð nemenda, fagmennska og gott samstarf eru í forgrunni?

Flataskóli leitar að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi í starf deildarstjóra nemendamála sem vill taka þátt í að þróa og efla skólastarf í jákvæðu og styðjandi starfsumhverfi.

Flataskóli er grunnskóli með um 300 nemendur í 1.–7. bekk og um 50 starfsmenn. Skólinn leggur áherslu á leiðsagnarnám, uppbyggileg samskipti og vellíðan nemenda. Skólinn er einnig Réttindaskóli UNICEF.

Sýn skólans er að efla seiglu, sjálfstæði, skapandi hugsun, sjálfstjórn og samkennd nemenda og starfsfólks. Markmiðið er að skapa námsumhverfi þar sem gerðar eru skýrar væntingar til nemenda og öllum er gert kleift að vaxa og dafna.

Um er að ræða 100% starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Um starfið

Deildarstjóri nemendamála er hluti af stjórnunarteymi skólans og gegnir lykilhlutverki í skipulagi og eftirfylgni nemendamála. Starfið felur í sér náið samstarf við starfsfólk, nemendur og foreldra og þátttöku í þróun og skipulagi skólastarfs.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sitja í stjórnunarteymi skólans
  • Skipuleggja sérkennslu, ÍSAT kennslu og stuðning við nemendur í samstarfi við skólastjórnendur
  • Ber ábyrgð á nemendamálum í 6. bekk
  • Vinna náið með deildarstjóra nemendamála 1.–5. bekkja
  • Vera tengiliður samkvæmt lögum um farsæld barna og fylgja eftir framkvæmd farsældar í skólanum
  • Stýra teymisfundum vegna einstakra nemenda
  • Styðja starfsfólk við að mæta fjölbreyttum þörfum nemenda
  • Halda utan um þjálfun stuðningsfulltrúa í samstarfi við atferlisfræðing og/eða þroskaþjálfa
  • Skipuleggja aðlögun nemenda í 1. bekk og efla samstarf leikskóla og grunnskóla
  • Taka þátt í skipulagi skólastarfs, m.a. skólanámskrá og öðrum áætlunum
  • Taka þátt í skólaþróun og faglegu leiðtogahlutverki, meðal annars á sviði leiðsagnarnáms
  • Skipuleggja forfallakennslu í samstarfi við stjórnendateymi
  • Taka þátt í undirbúningi viðburða í skólanum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði grunnskóla
  • Íslenskukunnátta á stigi C1 skv. evrópska tungumálarammanum
  • Kennslureynsla á yngsta og/eða miðstigi grunnskóla er nauðsynleg
  • Leikni í fjölbreyttum kennsluháttum
  • Lipurð í samskiptum ásamt metnaði í starfi
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum, stundvísi og samviskusemi
  • Ánægja af starfi með börnum og ungmennum
  • Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar er æskileg
  • Framhaldsmenntun í sérkennslufræðum er kostur
  • Góð tölvukunnátta
  • Áhugi og reynsla af leiðsagnarnámi er mikilvæg
  • Áhugi á skólaþróun og faglegu leiðtogahlutverki er nauðsynleg

*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.

Fríðindi í starfi
  • Heilsuræktarstyrkur fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
  • Bókasafnskort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Menningarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Sundlaugarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
Utworzono ofertę pracy17. March 2026
Termin nadsyłania podań26. March 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
Lokalizacja
Vífilsstaðavegur 123, 210 Garðabær
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.Pozytywne nastawieniePathCreated with Sketch.SumiennośćPathCreated with Sketch.OrganizacjaPathCreated with Sketch.Nastawienie do klienta
Zawody
Tagi zawodowe