

Fjármálastjóri
Vilt þú gegna lykilhlutverki í fjármálastjórn og stefnumótun sveitarfélags sem leggur áherslu á fagmennsku, gagnsæi og ábyrga meðferð fjármuna?
Skagafjörður leitar að öflugum og lausnamiðuðum fjármálastjóra sem hefur yfirsýn yfir rekstur, sterka greiningarhæfni og áhuga á að styðja stjórnendur og kjörna fulltrúa með traustri fjármálaráðgjöf.
Fjármálastjóri hefur umsjón með fjármálum sveitarfélagsins, stýrir áætlanagerð og eftirfylgni, greinir fjárhagsstöðu og sér til þess að fjárhagsupplýsingar séu skýrar, áreiðanlegar og aðgengilegar. Starfið felur í sér náið samstarf við sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs, sveitarstjóra og stjórnendur þvert á starfsemi sveitarfélagsins.
Skagafjörður er framsækið sveitarfélag sem leggur áherslu á faglega stjórnsýslu, traust samstarf og góða þjónustu við íbúa. Starfið er fullt starf og heyrir beint undir sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs.
Helstu verkefni
- Dagleg fjármálastjórn sveitarfélagsins, þ.m.t. fjárstýring og eftirlit með greiðsluflæði
- Gerð fjárhagsáætlunar og þriggja ára áætlunar í samstarfi við sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs og sveitarstjóra.
- Ársuppgjör, regluleg milliuppgjör og undirbúningur ársreiknings sveitarfélagsins
- Greining og framsetning fjármálaupplýsinga fyrir stjórnendur, byggðarráð og sveitarstjórn
- Fjárhagslegt eftirlit og eftirfylgni með rekstri sviða, deilda og stofnana sveitarfélagsins
- Ráðgjöf og stuðningur við framkvæmd fjárhagsáætlunar
- Umsjón með sjóðum, lánum og fjármálaþjónustu sveitarfélagsins
- Umsjón með álagningu gjalda, innheimtu og helstu tekjustofnum sveitarfélagsins
Hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi t.d. í viðskiptafræði, hagfræði eða sambærilegum greinum, meistaragráða er kostur
- Víðtæk og haldgóð reynsla af fjármálastjórn í krefjandi umhverfi
- Góð þekking og reynsla af áætlanagerð, bókhaldi, uppgjörum og fjármálagreiningu
- Þekking á lögum og reglum sem snerta opinbera stjórnsýslu og opinber fjármál sveitarfélaga kostur
- Mjög góð tölvufærni, sérstaklega í Excel og greiningartólum eins og PowerBI
- Farsæl reynsla af breytingastjórnun, stafrænni umbreytingu fjármála og uppbyggingu liðsheildar
- Reynsla af bókhaldskerfum, t.d. BC SaaS eða sambærilegum kerfum
- Skipulagshæfni, nákvæmni og talnagleggni
- Góð samskiptahæfni, þjónustulund og hæfni til að miðla flóknum upplýsingum á skýran hátt
- Gott vald á íslensku, bæði í rituðu og töluðu máli
- Hreint sakavottorð
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.
Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Hrafn Björnsson, sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs í síma 455 6000 eða með tölvupósti á netfangið [email protected].
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum á heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is (laus störf)
Umsókn skal fylgja:
- greinargóð ferilskrá
- prófskírteini
- stutt kynningarbréf þar sem fram kemur ástæða umsóknar og hvernig viðkomandi uppfyllir hæfnikröfur
Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun liggur fyrir.
islandzki



