Leikskólinn Sumarhús
Leikskólinn Sumarhús
Leikskólinn Sumarhús

Fagstjóri í hreyfingu

Leikskólinn Sumarhús, nýr leikskóli í Helgafellslandi í Mosfellsbæ, óskar eftir að ráða fagstjóra í hreyfingu til starfa. Leitað er að lausnamiðuðum og drífandi einstaklingum með brennandi áhuga á vellíðan og farsæld barna, framsækinni skólaþróun og framúrskarandi leikskólastarfi.

Í leikskólanum sem verður fimm deilda er gert ráð fyrir 150 börnum á aldrinum 1-5 ára og mun skólinn starfa eftir heilsustefnunni þar sem heilsa og vellíðan nemanda, starfsfólks og samfélagsins alls verður í forgrunni. Sköpun og leikurinn eru einnig mikilvægur hlekkur í starfinu og er þetta frábært tækifæri fyrir metnaðarfullan einstakling til að koma að þróun leikskólans frá upphafi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Hefur umsjón með skipulögðum hreyfistundum í skólanum 

  • Leggur áherslu á alhliða hreyfiörvun, jafnvægi, þol og styrk

  • Metur hreyfiþroska barna og skráir í heilsubók barnsins 

  • Tryggir að sérhvert barn fái kennslu, leiðsögn, umönnun og/eða sérkennslu eftir þörfum

  • Hefur umsjón með tækjakostum og kennslubúnaði í hreyfisal

  • Tekur þátt í teymisvinnu innan skólans

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íþróttakennari/fræðingur

  • Leikskólakennari eða annað kennarapróf/uppeldismenntun

  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum er æskileg

  • Framúrskarandi samskiptahæfni, lausnamiðuð hugsun og jákvætt viðmót 

  • Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði í starfi og faglegur metnaður 

  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði

Fríðindi í starfi
  • Samgöngustyrkur 
  • Líkamsræktarstyrkur 
  • Sundkort 
  • 36 stunda vinnuviku er náð með 38 stunda vinnuframlagi vikulega.  Starfsfólk safnar því tveimur stundum vikulega sem nýttir er sem frí á skráningardögum leikskóla Mosfellsbæjar
Utworzono ofertę pracy8. May 2025
Termin nadsyłania podań22. May 2025
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Vefarastræti 2-6, 270 Mosfellsbær
Rodzaj pracy
Zawody
Oznaczenia