Grundarheimilin
Grundarheimilin

Fagstjóri eignaumsýslu

Grundarheimilin óska eftir að ráða kraftmikinn og metnaðarfullan einstakling í starf fagstjóra eignaumsýslu. Fagstjóri ber ábyrgð á umsjón og rekstri fasteigna, tækja og búnaðar Grundarheimilanna. Jafnframt leiðir viðkomandi viðhaldsdeildina og ber ábyrgð á faglegu starfi hennar, skipulagi og daglegri stjórnun. Fagstjóri heyrir undir sviðsstjóra rekstrar- og fjármálasviðs.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Ábyrgð á rekstri einingarinnar
  • Utanumhald stærri framkvæmda á sviði viðhalds og endurbóta þar með talið gerð framkvæmdaáætlunar
  • Fjárhagsáætlunargerð
  • Samningagerð við þjónustuaðila og birgja
  • Daglegur rekstur og ábyrgð á starfsmannahaldi einingarinnar
  • Eftirfylgni verkefna sem unnin eru af verktökum og eftirlit verkkaupa
  • Samskipti við hönnuði, arkitekta og opinbera aðila vegna framkvæmda

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólapróf í byggingafræði, iðn- eða verkfræði. Iðnmenntun er kostur
  • Þekking og reynsla af umsjón verkefna og úttektum
  • Framúrskarandi samskiptahæfni
  • Frumkvæði, jákvætt viðhorf og lausnamiðuð nálgun
  • Mjög góð hæfni til ákvarðanatöku, eftirfylgni og verkefnastýringar
  • Mjög góð íslenskukunnátta í ræðu og riti

Grundarheimilin samanstanda af hjúkrunarheimilum í heilbrigðisþjónustu sem og íbúðafélögum fyrir íbúa 60+ og starfa þau á grundvelli samfélagslegra sjónarmiða.

Gildi Grundarheimilanna eru: Vellíðan – Virðing – Vinátta.

Nánari upplýsingar má finna á www.grundarheimilin.is.

Umsóknarfrestur er til og með 10. ágúst 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.isog þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir aðilar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.

Nánari upplýsingar veitir Sigríður Svava Sandholt ([email protected]) í s. 511 1225.

Utworzono ofertę pracy5. August 2026
Termin nadsyłania podań10. August 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Hringbraut 50
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.Inżynier budownictwaPathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.PrzemysłowiecPathCreated with Sketch.Pozytywne nastawieniePathCreated with Sketch.Interakcje międzyludzkiePathCreated with Sketch.Mistrz rzemiosła przemysłowegoPathCreated with Sketch.OrganizacjaPathCreated with Sketch.Zarządzanie projektemPathCreated with Sketch.Inżynier
Zawody
Tagi zawodowe