
Húsasmiðjan
Húsasmiðjan er meðal stærstu verslunarfyrirtækja landsins og hluti af Bygma Gruppen A/S. Bygma rekur fjölmargar byggingavöruverslanir í Danmörku, Svíþjóð, Færeyjum og á Grænlandi. Ásamt því rekur fyrirtækið nokkur heildsölufyrirtæki á byggingavörumarkaði í Danmörku.
Húsasmiðjuverslanir eru 16 talsins og eru Blómavalsútibú í sjö þeirra. Jafnframt er rafiðnaðarverslunin Ískraft með fjögur útibú.
Hjá Húsasmiðjunni starfa um 500 starfsmenn vítt og breytt um landið sem hafa margskonar bakgrunn eins og pípari, blómaskreytir, bókari, smiður, viðskiptafræði, grafískur hönnuður, múrari og fleira og fleira.
Húsasmiðjan býður upp á lifandi starfsumhverfi og frábæran starfsanda. Við leggjum mikla áherslu á símenntun og fræðslu og að starfsmenn fái tækifæri til þess að eflast og þróast í starfi.

Fagsölusvið: Viðskiptastjóri byggingalausna
Húsasmiðjan óskar eftir að ráða metnaðarfullan viðskiptastjóra byggingarlausna á fagsölusviði Húsasmiðjunnar. Starfið felur í sér ráðgjöf og þjónusta til fagaðila í góðri samvinnu við annað starfsfólk í fagsöluteyminu. Viðskiptastjóri aflar og viðheldur tengslum og viðskiptum við verktaka og aðra fagaðila, þá sér viðskiptastjóri um tilboðsgerð og er í samskiptum við birgja.
Á fagsölusviði starfa öflugir og reynslumiklir einstaklingar sem þjónusta stærstu viðskiptavini Húsasmiðjunnar og aðra aðila í stærri framkvæmdum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sala og ráðgjöf tengd byggingalausnum
- Samskipti við fagaðila, birgja og samstarfsaðila
- Greining á þörfum viðskiptavina og tilboðsgerð
- Þátttaka í þróun lausna og verkáætlunum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla sem nýtist í starfi, reynsla af sölu á byggingalausnum er æskileg.
- Menntun eða reynsla úr bygginga-, verkfræði- eða iðngreinum
- Reynsla af sölu til fyrirtækja og fagfólks (B2B)
- Tæknileg innsýn og lausnamiðuð nálgun
- Mjög góð samskipta- og skipulagshæfni
Fríðindi í starfi
- Heilsuefling, s.s. heilsufarsskoðun, bólusetning, aðgangur að sálfræðiþjónustu, heilsueflandi fræðsla
- Aðgangur að orlofshúsum
- Ýmsir styrkir, s.s. íþróttastyrkur, samgöngustyrkur og fræðslustyrkur
- Afsláttarkjör í verslunum okkar
Utworzono ofertę pracy19. June 2025
Termin nadsyłania podań6. July 2025
Znajomość języków

Wymagane

Wymagane
Lokalizacja
Kjalarvogur 12, 104 Reykjavík
Rodzaj pracy
Kompetencje
Dynamics AXAmbicjaSamodzielność w pracySprzedażRelacje biznesoweNastawienie do klienta
Zawody
Oznaczenia
Więcej ofert pracy (3)
Podobne oferty pracy (12)

Uppsetningar innréttinga
GKS innréttingar

Viðskiptastjóri
Icepharma

Langar þig að starfa við framkvæmdareftirlit?
EFLA hf

Verslunarstjóri Icewear
ICEWEAR

Fagsölusvið: Viðskiptastjóri í álgluggum og iðnaðar- og eldvarnarhurðum
Húsasmiðjan

Fagsölusvið: Viðskiptastjóri í gluggadeild
Húsasmiðjan

Verkefnastjóri; Úttektir, eftirlit og ráðgjöf
VERKVIST

Við leitum að sterkum liðsmanni í byggingarvinnu!
Sólhús ehf

Sölu- og þjónustufulltrúi AVIS
Avis og Budget

Smiðir til starfa
B.Ó.Smiðir ehf

Starfsmaður í Augað gleraugnaverslun
Augað gleraugnaverslun

Sölu- og markaðsfulltrúi Overcast
Overcast ehf.