Arctic Trucks Ísland ehf.
Arctic Trucks Ísland ehf.
Arctic Trucks Ísland ehf.

Ef stór dekk eru ekki vandamál heldur skemmtileg áskorun þá viljum við heyra í þér!

Starfsmaður óskast á dekkjaverkstæði

Arctic Trucks leitar að framtíðarstarfsmanni á dekkjaverkstæðið. Við erum ekki að leita að skammtímalausn, heldur einhverjum sem vill vaxa með okkur til lengri tíma.

Hér eru bílarnir sem fara þangað sem aðrir komast ekki, og þú ert sá sem gerir þá klára í leiðangurinn.

      Þú munt:

      • Skipta um og þjónusta dekk — frá hefðbundnum jeppadekkjum upp í sérsmíðuð risadekk
      • Setja aukahluti á bíla og gera þá tilbúna fyrir krefjandi aðstæður
      • Takast á við fjölbreytta verkstæðisvinnu þar sem enginn dagur er eins

      Þú ert málið ef þú:

      • Ert í góðu líkamlegu formi og til í að taka á því — dekkin eru ekkert smáræði
      • Mætir alltaf á réttum tíma
      • Vinnur jafn vel ein(n) og í teymi
      • Talar íslensku og/eða mjög góða ensku

      Vinnutími: mán–fim 08:00–17:00, fös 08:00–15:30. Helgarnar fara í þín eigin ævintýri.

      Helstu verkefni og ábyrgð

      Starfið felst í:

      • Dekkjaskiptum og þjónustu (stór jeppa- og sérdekk)
      • Uppsetningu aukahluta á bifreiðar
      • Almennri verkstæðisvinnu
      Utworzono ofertę pracy15. June 2026
      Termin nadsyłania podań29. June 2026
      Znajomość języków
      islandzkiislandzki
      Wymagane
      Doskonale
      AngielskiAngielski
      Wymagane
      Doskonale
      Lokalizacja
      Klettháls 3, 110 Reykjavík
      Rodzaj pracy
      Zawody
      Tagi zawodowe