Dineout ehf.
Dineout ehf.
Dineout ehf.

Dineout leitar að öflugum framendaforritara

Dineout leitar að reyndum framendaforritara til að ganga til liðs við öflugt þróunarteymi fyrirtækisins. Við vinnum að lausnum sem einfalda rekstur og bæta upplifun veitingastaða, þjónustufyrirtækja og viðskiptavina þeirra. Stór hluti af því sem við byggjum eru ríkar og flóknar notendaupplifanir í vafranum — og því leitum við sérstaklega að öflugum framendaforritara. Það er kostur ef þú ert full stack og hefur einhverja þekkingu á bakendaþróun.

Ef þú hefur ástríðu fyrir vönduðum kóða, ert lausnamiðuð/lausnamiðaður og vilt hafa áhrif á hvernig nýjar lausnir verða til frá grunni, þá viljum við heyra frá þér.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Leiða þróun á flóknum og umfangsmiklum framenda í React og TypeScript.
  • Taka virkan þátt í þróun og viðhaldi núverandi kerfa Dineout og Sinna.
  • Leiða þróun nýrra lausna í nánu samstarfi við vöru- og hönnunarteymi.
  • Hjálpa til við að velja réttu tæknina fyrir hvert verkefni.
  • Leiðbeina öðrum forriturum í teyminu og leggja af mörkum til tæknilegrar stefnumótunar.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Að minnsta kosti 5 ára reynsla í hugbúnaðarþróun á atvinnumarkaði.
  • Djúp reynsla af React og TypeScript í veflausnum, ásamt sannaðri getu til að smíða flókna og umfangsmikla framenda.
  • Góður skilningur á nútíma framendaarkitektúr — t.d. íhlutahönnun (component design), umsýslu á flóknu stöðuhaldi (state management) og frammistöðu (performance) í stórum kerfum.
  • Góð samskiptahæfni og geta til að vinna sjálfstætt sem og í teymi.
Utworzono ofertę pracy16. June 2026
Termin nadsyłania podań7. July 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
AngielskiAngielski
Wymagane
Ojczysty
Lokalizacja
Katrínartún 2, 105 Reykjavík
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe