Dineout ehf.
Dineout ehf.
Dineout ehf.

Dineout ehf. leitar að drífandi og lausnamiðuðum deildarstjóra þjónustu

Um er að ræða lykilhlutverk í ört vaxandi hugbúnaðarfyrirtæki þar sem verkefnin felast meðal annars í að leiða framsýnt þjónustuteymi, innleiða nýja viðskiptavini og efla tengsl við núverandi viðskiptavini með framúrskarandi þjónustu.

Unnið er á skrifstofu fyrirtækisins við Katrínartún 2 í Reykjavík.

Dineout ehf. er leiðandi hugbúnaðarhús með áherslur á lausnir fyrir veitingastaði, hótel, þjónustufyrirtæki og annan rekstur. Fyrirtækið var stofnað árið 2017 og hefur verið í miklum vexti síðan. Það samanstendur af þverfaglegu teymi forritara, verkfræðinga og sérfræðinga með mikla reynslu og þekkingu af daglegum rekstri veitingastaða og þjónustuaðila.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stýra og þróa þjónustuteymi Dineout með skýra framtíðarsýn og hvetjandi forystu
  • Móta og innleiða þjónustustefnu sem styður við markmið fyrirtækisins
  • Byggja upp og viðhalda sterkum tengslum við viðskiptavini
  • Safna og greina gögn um þjónustu og ánægju viðskiptavina til stuðnings við ákvarðanatöku
  • Leiða innleiðingu nýrra viðskiptavina og fylgja þeim eftir með markvissu eftirliti
  • Þróa og halda utan um þjálfunaráætlanir fyrir þjónustuteymið
  • Vinna þvert á svið með þróunarteymi, markaðs- og rekstrardeildum
  • Sinna öðrum tilfallandi verkefnum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af leiðtogastarfi innan þjónustumiðaðs umhverfis
  • Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af stýringu í hugbúnaðargeiranum
  • Reynslu af verkefnastjórnun er kostur
  • Sterk samskiptahæfni og þjónustulund
  • Háskólamenntun í viðskiptafræði eða sambærilegu sviði er kostur
  • Góð tækni-, hugbúnaðar- og tölvukunnátta
  • Leiðtogahæfni og geta til að byggja upp liðsheild
  • Frumkvæði og lausnamiðuð hugsun
  • Rík þjónustulund og lipurð í samskiptum
Utworzono ofertę pracy20. May 2026
Termin nadsyłania podań8. June 2026
Znajomość języków
AngielskiAngielski
Wymagane
Ojczysty
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
Lokalizacja
Katrínartún 2, 105 Reykjavík
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.Ogólne umiejętności technicznePathCreated with Sketch.Szybko się uczęPathCreated with Sketch.Bez kryminalnej przeszłościPathCreated with Sketch.Pozytywne nastawieniePathCreated with Sketch.Interakcje międzyludzkiePathCreated with Sketch.Prawo jazdyPathCreated with Sketch.NiepalącyPathCreated with Sketch.Nastawienie do klienta
Środowisko pracy
Zawody
Tagi zawodowe