Félagsvísindasvið Háskóla Íslands
Félagsvísindasvið Háskóla Íslands
Félagsvísindasvið Háskóla Íslands

Deildarstjóri Viðskiptafræðideildar

Laust er til umsóknar fullt starf deildarstjóra Viðskiptafræðideildar á Félagsvísindasviði Háskóla Íslands. Deildarstjóri tilheyrir stjórnsýslu sviðs og er rekstrarstjóri Félagsvísindasviðs næsti yfirmaður hans. Deildarstjóri vinnur jafnframt náið með deildarforseta Viðskiptafræðideildar. Við Viðskiptafræðideild er boðið upp á fimm grunnnámslínur, þrettán meistaranámslínur auk doktorsnáms. Árlega brautskrást um 300 nemendur úr námi við deildina og þar starfa hátt í fjörutíu fastir kennarar og fjöldi stundakennara.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón og eftirfylgni með fjármálum og daglegum rekstri deildar í samstarfi við rekstrarstjóra og deildarforseta
  • Fjárhagsáætlanagerð og eftirfylgni hennar í samvinnu við deildarforseta
  • Skipulag funda og viðburða á vegum deildar og eftirfylgni með ákvörðunum
  • Samstarf og aðstoð við deildarforseta í daglegum störfum og við framkvæmd stefnu deildar
  • Samstarf við kennara deildar og þátttaka í samhæfingu daglegrar starfsemi.
  • Teymisvinna innan Félagsvísindasviðs m.a. í      fjármálum, markaðs- og  kynningarmálum og móttöku nýs starfsfólks í deild
  • Þátttaka í þróun samstarfs deildar við atvinnulíf og stuðningur við verkefni sem efla tengsl deildarinnar við fyrirtæki og stofnanir
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf sem nýtist í starfi, meistarapróf er kostur 
  • Reynsla af fjármálum og/eða rekstri     
  • Reynsla af störfum í opinberri stjórnsýslu er kostur 
  • Góð tölvufærni, þar á meðal í Excel
  • Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í töluðu og rituðu máli
  • Góð færni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
  • Frumkvæði, nákvæmni, metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum
Utworzono ofertę pracy26. March 2026
Termin nadsyłania podań7. April 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
AngielskiAngielski
Wymagane
Kompetencje na wysokim poziomie
Lokalizacja
Sæmundargata 10, 101 Reykjavík
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe