Húsasmiðjan
Húsasmiðjan
Húsasmiðjan

Deildarstjóri vefverslunar í Húsasmiðjunni

Deildarstjóri vefverslunar

Leitum að öflugum aðila til að stýra vefverslunardeild Húsasmiðjunnar í Skútuvogi. Deildarstjóri vefverslunar hefur umsjón með og ber ábyrgð á afgreiðslu allra pantana í vefverslun og þjónustu við viðskiptavini vefverslunar hjá Húsasmiðjunni og Blómaval. Starf deildarstjóra vefverslunar er fjölbreytt og felur m.a. í sér tiltekt á öllum pöntunum úr vefverslun, pökkun og merkingu sendinga, samskipti við viðskiptavini og starfsfólk Húsasmiðjunnar um land allt, samskipti við flutningsaðila, aðstoð við vörumyndatökur og skráningu í vöruskrá vefverslunar og fleira.

Deildarstjóri vefverslunar er í miklum samskiptum við allar verslanir Húsasmiðjunnar, vöruhús, markaðsdeild og vefstjóra Húsasmiðjunnar. Deildarstjóri vefverslunar er staðsettur í verslun Húsasmiðjunnar í Skútuvogi þar sem tiltekt á vörum fer fram og starfar hann náið með öflugu starfsfólki verslunarinnar. Deildarstjóri heyrir undir rekstrarstjóra Húsasmiðjunnar og Blómavals í Skútuvogi.

Hæfniskörfur:

  • Skipulögð og öguð vinnubrögð
  • Rík þjónustulund
  • Góð almenn tölvuþekking
  • Brennandi áhugi á uppbyggingu vefverslunar
  • Lausnamiðuð hugsun og jákvæðni
  • Geta til að vinna undir álagi
  • Rík hæfni í mannlegum samskiptum

Hægt er að fá nánari upplýsingar um starfið með því að senda póst á rekstrarstjóra, [email protected]

Við hvetjum öll til þess að sækja um, óháð kyni.

Húsasmiðjan er líflegur vinnustaður með góðan starfsanda og sterka liðsheild. Húsasmiðjan leggur áherslu á að nýta til hins ýtrasta hæfni, frumkvæði og þekkingu samhents hóps rúmlega 500 starfsmanna sem starfa hjá fyrirtækinu. Lögð er rík áhersla á símenntun og fræðslu og að starfsmenn eigi þess kost að eflast og þróast í starfi.

Gildin okkar eru: Gleði - Kraftur - Fagmennska

Utworzono ofertę pracy16. June 2026
Termin nadsyłania podań8. July 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
AngielskiAngielski
Wymagane
Kompetencje na wysokim poziomie
Lokalizacja
Skútuvogur 16, 104 Reykjavík
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe