

Deildarstjóri stoðþjónustu í Eskifjarðarskóla
Starfið heyrir undir skólastjóra grunnskóla og er starfsmaður ábyrgur í störfum sínum
gagnvart skólastjóra. Starfsmaður annast skipulagningu sérkennslu í skólanum og gerir tillögu
um nýtingu sérkennslutíma og stuðningstíma sem skólinn hefur til ráðstöfunar. Hann er
faglegur yfirmaður sérkennara og stuðningsfulltrúa. Hann heldur utan um framkvæmd
skimana í lestri og stærðfærði og ráðleggur kennurum með úrvinnslu í samráði við
kennslufulltrúa Skólaþjónustu Fjarðabyggðar.
Annast skipulagningu sérkennslu í skólanum og aðstoðar skólastjórnendur við
stefnumörkun skólans í sérkennslu.
Gerir tillögu til skólastjóra um nýtingu sérkennslutíma og stuðningstíma sem skólinn
hefur til ráðstöfunar.
Er næsti yfirmaður sérkennara og stuðningsfulltrúa, fylgist með störfum þeirra og
ráðleggur.
Sér um stundatöflugerð stuðningsfulltrúa og sérkennara með aðstoð
aðstoðarskólastjóra.
Leyfisbréf til kennslu í grunnskóla.
Viðbótarmenntun í sérkennslu er kostur.
Reynsla af sérkennslu er æskileg.
Góð tungumálakunnátta, íslenska og enska.
Þekking á kennslu- og uppeldisfræði
Hreint sakavottorð
islandzki
