
Akureyri
Akureyrarbær er stór vinnustaður með rúmlega 2.000 starfsmenn. Á hverju vori fjölgar starfsfólki um nálægt 1.200 manns vegna sumarafleysinga og vinnuskólans.
Starfsfólk Akureyrarbæjar sinnir margvíslegum verkefnum sem tryggja velferð og ánægju íbúa Akureyrar, hvort sem um er að ræða störf við leik- eða grunnskóla, íbúakjarna, rekstur mannvirkja, stjórnsýslu eða annað.

Velferðarsvið: Deildarstjóri í skammtímaþjónustu Þórunnarstræti 99 Akureyri
Velferðarsvið Akureyrarbæjar óskar eftir að ráða deildarstjóra í 100% ótímabundið starf í skammtímaþjónustunni Þórunnarstræti 99, unnið er í vaktavinnu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. september eða eftir samkomulagi.
Innan skammtímaþjónustunnar er veitt fjölþætt þjónusta. Þau úrræði sem þjónustan felur í sér eru lengd viðvera fyrir einstaklinga á aldrinum 10-20 ára, Lífsleikni sem er fyrir einstaklinga á aldrinum 20-30 ára og eru ekki komnir í fast búsetuúrræði, skammtímavistun fyrir börn og ungmenni sem enn búa hjá foreldrum, sumarvistun fyrir einstaklinga á aldrinum 6-20 ára og neyðarvistun fyrir notendur þjónustunnar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hefur með höndum daglega verkstjórn og leiðir faglegt starf á starfsstöðinni samkvæmt þeirri hugmyndafræði sem velferðarsvið vinnur eftir. Í því felst m.a. leiðsögn, þjálfun og fagleg ráðgjöf til starfsmanna og annara sem koma að þjónustu við notendur.
- Hefur umsjón með uppbyggingu, og skipulagning á einstaklingsmiðaðri, heildstæðri og sveigjanlegri þjónustu á starfsstöð sinni.
- Vinnur með notendum og eftir atvikum aðstandendum að gerð einstaklingsmiðaðrar áætlunar um þjónustu og markmið hennar og er leiðandi í framfylgd hennar.
- Miðlar upplýsingum og áherslum forstöðumanns þjónustunnar til alls starfsfólks og um breytingar í þjónustu og/eða varðandi líðan eða ástand notenda.
- Veitir faglega ráðgjöf, fræðslu og stuðning við þjónustunotendur og aðstandendur, t.d. með gerð umsókna og skýrslna ef þörf krefur.
- Setur fram vaktaskýrslu og aðstoðar við vaktagerð/ -framkvæmd í samstarfi við forstöðumann.
- Sinnir varðveislu og skráningu upplýsinga og gagna sem til verða í starfseminni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Starfsleyfi sem þroskaþjálfi, iðjuþjálfi er skilyrði.
- Góð almenn tölvukunnátta og ökuréttindi eru nauðsynleg.
- Reynsla af starfi með fötluðum eða fólki með krefjandi hegðun er nauðsynleg.
- Framúrskarandi færni í samskiptum, skipulagningu og stjórnun.
- Vandvirkni og samviskusemi.
- Sjálfstæði í störfum og frumkvæði.
- Eiga auðvelt með laga sig að breyttum aðstæðum og tileinka sér nýjungar.
- Bera virðingu fyrir þjónustuþegum og réttindum þeirra.
- Hafa áhuga á að leggja sitt af mörkum til að bæta þjónustuna og auka lífsgæði þeirra einstaklinga sem verið er að styðja.
- Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti.
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Utworzono ofertę pracy25. July 2025
Termin nadsyłania podań10. August 2025
Znajomość języków

Wymagane
Lokalizacja
Þórunnarstræti 99, 600 Akureyri
Rodzaj pracy
Kompetencje
InicjatywaInterakcje międzyludzkieSamodzielność w pracyOrganizacjaElastyczność
Zawody
Tagi zawodowe
Więcej ofert pracy (3)
Podobne oferty pracy (12)

Stuðningsfulltrúi í Arnarskóla – Sérhæfður stuðningur fyrir nemendur með mikla stuðningsþörf
Arnarskóli

Velferðarsvið: Háskólamenntaður starfsmaður í skammtímaþjónustu Þórunnarstræti 99 Akureyri
Akureyri

Þroskaþjálfi, atferlisfræðingur eða sálfræðimenntaður aðili
Leikskólinn Stakkaborg

Aðstoðarfólk í hlutastarf.
MG Þjónustan

Forstöðumaður búsetuþjónustu og skammtímavistunar
Fjarðabyggð

Kraftmikill og metnaðarfullur deildarstjóri óskast
Leikskólinn Sjáland

Ert þú kennari? þá er þetta starfið fyrir þig
Leikskólinn Sjáland

Óska eftir aðstoðarkonu
NPA miðstöðin

50% NPA staða - 3-4 dagar í mánuði
Forréttindi

Spennandi starf stuðningsráðgjafa í búsetuþjónustu
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Óska eftir hressum húmoristum í teymið mitt!
NPA miðstöðin

Velferðarsvið: Starfsmaður í nýjan búsetukjarna Hafnarstræti
Akureyri