Brekkubæjarskóli
Brekkubæjarskóli

Danskennari í Brekkubæjarskóla

Brekkubæjarskóli er annar tveggja heildstæðra grunnskóla á Akranesi. Nemendur skólans eru um 470 talsins, en starfsmenn um 100.

Staða danskennara er laus í Brekkubæjarskóla fyrir skólaárið 2025 - 2026.

Um er að ræða 57,69% stöðu frá 1. ágúst 2025 til 31. júlí 2026.

Leitað er að framsýnum, metnaðarfullum kennara sem getur unnið í góðu samstarfi við nemendur, samstarfsfólk og foreldra.

Kennarinn verður að geta skipulagt nám fjölbreytts nemendahóps þar sem allir nemendur fá tækifæri til að njóta sín á eigin forsendum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Kenna dans í 1. - 6. bekk skólans.
  • Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsfólki.
  • Stuðla að farsæld nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til danskennslu (leyfisbréf skal fylgja umsókn).
  • Reynsla af danskennslu.
  • Reynsla af bekkjarstjórnun.
  • Reynsla af kennslu í fjölbreyttum nemendahópi.
  • Frumkvæði og sjálfstæði.
  • Góð samstarfshæfni.
  • Lipurð og sveigjanleiki í mannlegum samskiptum.
  • Óbilandi trú á réttindum barna og ungmenna og áhugi á að starfa með þeim og foreldrum þeirra.
  • Góð íslenskukunnátta.
Utworzono ofertę pracy22. April 2025
Termin nadsyłania podań6. May 2025
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
Lokalizacja
Vesturgata 120, 300 Akranes
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.TaniecPathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.Samodzielność w pracy
Zawody
Oznaczenia