
Rafmennt ehf.
Rafmennt er þekkingarfyrirtæki sem veitir þjónustu og sinnir fræðslu fyrir raf- og tækniiðnaðinn á Íslandi. Hlutverk Rafmenntar er að veita fagaðilum og nemendum í raf- og tæknigreinum tækifæri til að stunda öflugt framhaldsnám og sinna endurmenntun. Rafmennt heldur reglulega endurmenntunarnámskeið og fyrirlestra fyrir fagfólk í raf- og tækniiðnaðinum, sér um kennslu fagnámshluta meistaraskólans, heldur úti rafbók.is netbókasafn rafiðnaðarins og hefur umsjón með raunfærnimati og sveinsprófum.

Bókari – 50–100% starf hjá Rafmennt
Rafmennt, leitar að reynslumiklum og vönduðum bókara í 50–100% starf.
Viðkomandi ber ábyrgð á daglegu bókhaldi Rafmenntar og tengdra eininga og vinnur náið með framkvæmdastjóra og skrifstofustjóra.
Við leitum að einstaklingi sem hefur traustan faglegan grunn, gjörþekkir DK og vinnur sjálfstætt, skipulega og af nákvæmni. Í boði er gott starfsumhverfi hjá rótgróinni stofnun sem sinnir menntun og fræðslu fyrir rafiðnaðinn, tæknigreinar og kvikmyndaiðnaðinn.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Færsla bókhalds og afstemmingar
- Launavinnsla
- Undirbúningur mánaðar- og ársuppgjörs í samstarfi við endurskoðanda
- Eftirfylgni og framsetning fjárhagsupplýsinga
- Önnur tilfallandi verkefni á sviði fjármála
Menntunar- og hæfniskröfur
- Afburða þekking á DK bókhaldskerfi er skilyrði
- Víðtæk reynsla af bókhaldi og uppgjörum a.m.k. 5 ár
- Viðurkenndur bókari eða sambærileg menntun er kostur
- Góð Excel-kunnátta
- Nákvæmni, áreiðanleiki og sjálfstæð vinnubrögð
- Mjög góð íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi
- Sveigjanlegt starfshlutfall, 50–100%
- Sveigjanlegur vinnutími
- Góð vinnuaðstaða á Stórhöfða
Utworzono ofertę pracy25. September 2026
Termin nadsyłania podań9. October 2026
Znajomość języków
islandzkiWymagane
Lokalizacja
Stórhöfði 27, 110 Reykjavík
Rodzaj pracy
Kompetencje
RekoncyliacjaRzetelnośćDKPraca zarobkowaMicrosoft ExcelPrecyzjaFakturowanieSamodzielność w pracySprawozdanie finansowe
Zawody
Tagi zawodowe
Podobne oferty pracy (8)

Bókari,launafulltrúi
Vörukaup ehf

Reikningshald og skrifstofustjórn
Alfa Framtak

Aðalbókari sveitarfélagsins Skagastrandar
Sveitarfélagið Skagaströnd

Bókari
Ráðum

Aðalbókari
Steypustöðin

Launa- og rekstrarfulltrúi
Barna- og fjölskyldustofa

Fulltrúi á fjármálasviði / Bookkeeper
Rapyd Europe hf.

Bókari og Uppgjörsaðili
Fjárheimar ehf.