Bjarg íbúðafélag
Bjarg íbúðafélag
Bjarg íbúðafélag

Bókari

Bjarg íbúðafélag leitar eftir drífandi og nákvæmum einstakling í starf bókara. Í boði er áhugavert starf á krefjandi og skemmtilegum vinnustað.

Við leitum að einstaklingi sem ber ábyrgð á bókhaldi félagsins, getur unnið sjálfstætt, sýnt frumkvæði og býr yfir sterkri þjónustulund. Um er að ræða fullt starf hjá vaxandi bygginga og leigufélagi.

Bjarg íbúðafélag er sjálfseignarstofnun stofnuð af ASÍ og BSRB. Félagið er rekið án hagnaðarmarkmiða og er ætlað að tryggja tekjulágum einstaklingum og fjölskyldum á vinnumarkaði aðgengi að öruggu íbúðarhúsnæði í langtímaleigu. Félagið hefur byggt yfir 1.300 íbúðir um land allt.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ber ábyrgð á bókhaldi félagsins.
  • Færsla og afstemming bókhalds.
  • Reikningagerð og innheimta.
  • Verkbókhald – uppgjör verka.
  • Skýrslugerð, gagnaöflun og úrvinnsla gagna.
  • Samskipti við starfsfólk, hagaðila og viðskiptavini.
  • Ýmis tilfallandi verkefni sem rúmast innan sviðs.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Viðurkenndur bókari/eða haldbær reynsla sem nýtist í starfi.
  • Góð þekking og reynsla af bókhaldi, uppgjöri og afstemmingum.
  • Góð Excel kunnátta.
  • Þekking og reynsla af dk bókhaldskerfinu.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt hugarfar.
  • Frumkvæði, skipulagshæfni, nákvæmni og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Gott vald á íslensku og ensku.

Áhugasamir einstaklingar eru hvattir til að sækja um. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Utworzono ofertę pracy21. May 2026
Termin nadsyłania podań2. June 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
Lokalizacja
Klettháls 1, 110 Reykjavík
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.DKPathCreated with Sketch.Microsoft Excel
Zawody
Tagi zawodowe