DHL Express Iceland ehf
DHL Express Iceland ehf
DHL Express Iceland ehf

Bílstjóri á dagrútu DHL í Garðabæ

DHL Express Iceland ehf óskar eftir að ráða bílstjóra í 100% starfi í bílstjórateymi fyrirtækisins á starfsstöð að Miðhrauni 2, 210 Garðabæ. Vinnutíminn er alla virka daga frá kl. 10:00 til 18:00 mánudaga til fimmtudags og á föstudögum frá kl. 10:00 til 17:15

Leitað er að metnaðarfullum, árangurdrifnum og sjálfstæðum einstakling með ríka þjónustulund sem er reiðubúinn að takast á við krefjandi verkefni í fjölbreyttu alþjóðlegu starfsumhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Afhenda og sækja sendingar til viðskiptavina
  • Umsýsla og vinnsla með sendingar fyrir flutning
  • Samskipti við viðskiptavini og samstarfsmenn í öðrum deildum
  • Þátttaka í öðrum verkefnum innan deildarinnar

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Lipurð í samskiptum og góð þjónustulund
  • Nákvæm og skipulögð vinnubrögð
  • Góð Íslensku- og enskukunnátta
  • Gild ökuréttindi eru skilyrði fyrir ráðningu
  • Hreint sakavottorð er skilyrði fyrir ráðningu

Fríðindi í starfi:

  • Fæðisdagpeningar skv. stefnu fyrirtækisins á Íslandi
  • Árlegur lýðheilsustyrkur
  • Merktur fatnaður skv. stefnu fyrirtækisins á Íslandi

DHL Express á Íslandi er hluti af alþjóðlegri samsteypu Deutsche Post DHL sem starfar í 220 löndum og landsvæðum. DHL er alþjóðlegasta flutningarfyrirtækið í heiminum í dag og þjónustan byggist á hraðsendingum og fraktflutningum á milli landa og heimsálfa.

Á Íslandi erum við stolt af því að vera viðurkennd sem Framúrskarandi Fyrirtæki, núna 6 ár í röð, ásamt því að vera í topp sætum í Great Place To Work yfir bestu fyrirtæki ársins hér á landi. DHL Express á Íslandi samanstendur af fjölbreyttum hóp 120 alþjóðlegra sérfræðinga sem vinna markvisst við það að tengja saman fólk um allan heim.

Utworzono ofertę pracy1. October 2024
Termin nadsyłania podań13. October 2024
Lokalizacja
Miðhraun 2, 210 Garðabær
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.Podstawowe kategorie prawa jazdyPathCreated with Sketch.Interakcje międzyludzkiePathCreated with Sketch.Prawo jazdy kategorii BEPathCreated with Sketch.Prawo jazdy kategorii CPathCreated with Sketch.Prawo jazdy kategorii DPathCreated with Sketch.Prawo jazdyPathCreated with Sketch.Samodzielność w pracyPathCreated with Sketch.DostawaPathCreated with Sketch.SpedycjaPathCreated with Sketch.Nastawienie do klienta
Zawody
Oznaczenia