
Klettur - sala og þjónusta ehf
Saga Kletts og forvera félagsins nær aftur til 1947 og er því óhætt að segja að félagið byggi á traustum grunni sérhæfðrar þekkingar og reynslu. Árið 2010 markaði nýtt upphaf en þá hófst starfsemi Kletts sem tók yfir allan rekstur vélasviðs Heklu. Allar götur síðan hefur Klettur verið leiðandi í sölu og þjónustu sem nær yfir breiða línu vinnuvéla, aflvéla, rafstöðva, lyftara, rafgeyma, hleðslukrana, hjólbarða, vöruflutninga- og hópferðabíla, gíra og skrúfubúnaðar. Klettur býður einnig upp á ýmsan hliðarbúnað og fylgihluti frá þekktum vörumerkjum.
Helstu vörumerki félagsins eru Caterpillar vinnuvélar, aflvélar, rafstöðvar og lyftarar, Perkins aflvélar og rafstöðvar, Scania vöruflutninga- og hópferðabifreiðar, Scania aflvélar og rafstöðvar, Goodyear, Dunlop, Sava, Fulda, og Maxam hjólbarðar, Ingersoll Rand loftpressur, Mitsubishi gufuaflstúrbínur, ZF gírar, Hiab hleðslukaranar og gámakrókar, Scana Volda skrúfu- og gírbúnaður, Ausa vinnuvélar, Multione liðléttingar, Hubtex lyftarar, Hawker neyslurafgeymar, Langendorf vagnar og pallar og Larue snjóblásarar. Félagið hefur starfað í marga áratugi með helstu birgjum sínum og er meðal elstu umboðsaðila þeirra vörumerkja í Evrópu.
Félagið og starfsmenn leggja metnað sinn í að vera leiðandi í sölu og þjónustu á þeim mörkuðum sem félagið vinnur á og að þær vörur og þjónusta sem boðið er uppá hjálpi viðskiptavinum Kletts að ná sem bestum árangri.

Bifvélavirki á vörubílaverkstæði Hafnarfirði
Vegna góðrar verkefnastöðu og aukinna umsvifa leitum við að öflugum aðila í bilgreiningar og viðgerðir á vörubílum, hópferðabílum og tengdum búnaði.
Leitað er að aðila til að ganga til liðs við öflugt teymi bifvélavirkja á vörubílaverkstæði. Verkefnin eru fjölbreytt og spennandi í fyrirmyndaraðstöðu. Leitað er að starfskrafti á verkstæði okkar í Hafnarfirði við Einhellu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Bilanagreiningar á rafbúnaði, vélum, gírkössum, drifum, undirvagni og öðrum íhlutum.
- Standsetningar á nýjum bílum ásamt ásetningu á ýmsum aukabúnaði.
- Almenn viðhaldsvinna, s.s. viðgerðir á vélum, gírkössum, drifum, undirvagni, rafmagnsbúnaði og öðrum íhlutum.
- Vinna eftir gæðakerfi Kletts og fylgja handbókum, stöðlum og fyrirmælum framleiðanda.
- Sækja námskeið á vegum Kletts og annarra kennslustofnana.
- Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Fullgild réttindi sem bifvélavirki eða vélvirkjun.
- Fagmennska og vinnusemi.
- Kunnátta til að fara með bilanagreina, sérverkfæri og önnur tengd verkfæri.
- Góð íslensku- og/eða enskukunnátta
- Nákvæmni, stundvísi og góð samstarfs- og samskiptahæfni
Fríðindi í starfi
- Niðurgreiddur matur.
- Sterkt og virkt starfsmannafélag.
- Íþróttastyrkur.
- Afsláttur af vörum og þjónustu fyrirtækisins.
Utworzono ofertę pracy24. April 2026
Termin nadsyłania podań11. May 2026
Znajomość języków
islandzkiWymagane
AngielskiWymagane
Lokalizacja
Einhella 1, 221 Hafnarfjörður
Rodzaj pracy
Kompetencje
Mechanika samochodowaPrawo jazdyMechanika
Zawody
Tagi zawodowe
Więcej ofert pracy (7)

Klettur - Viðgerðarmaður í loftlausnum
Klettur - sala og þjónusta ehf

Starfsmaður á lager/verslun Hafnarfirði
Klettur - sala og þjónusta ehf

Vélfræðingur/rafvirki vélaverkstæði CAT
Klettur - sala og þjónusta ehf

Klettur - Vélvirki á vélaverkstæði CAT
Klettur - sala og þjónusta ehf

Vélvirki/Vélstjóri Akureyri
Klettur - sala og þjónusta ehf

Bifvélavirki - Akureyri
Klettur - sala og þjónusta ehf

Bifvélavirki á vörubílaverkstæði - Reykjavík
Klettur - sala og þjónusta ehf
Podobne oferty pracy (12)

Vörustjóri véladeild
Fálkinn Ísmar

Vélvirki / Vélstjóri - þjónustudeild
Fálkinn Ísmar

Óskum eftir vélvirkja
Trefjar ehf

Car Mechanic / Bifvélavirki
Lotus Car Rental ehf.

Bifvélavirki, skoðunarmaður
Aðalskoðun hf.

Sérfræðingur vélbúnaðar
Norðurál

Bifvélavirkjar óskast í ört vaxandi ferðaþjónustufyrirtæki
ICS ehf.

Bílaviðgerðir.
Bílatorgið

Sumarstarfsmaður á verkstæði
Rafgeymasalan ehf.

Bifvélavirkjar - Askja Reykjanesbæ
Bílaumboðið Askja

Vélfræðingur/rafvirki vélaverkstæði CAT
Klettur - sala og þjónusta ehf

Klettur - Vélvirki á vélaverkstæði CAT
Klettur - sala og þjónusta ehf