Skrifstofa Alþingis
Skrifstofa Alþingis
Skrifstofa Alþingis

Alþjóðasérfræðingur í norrænu samstarfi

Skrifstofa Alþingis auglýsir eftir öflugum sérfræðingi til starfa í alþjóðadeild á samskipta- og alþjóðasviði. Viðkomandi mun einkum sinna norrænu samstarfi og starfa fyrir Íslandsdeild Norðurlandaráðs og því krefst starfið afburða hæfni í norrænum tungumálum. Starfið er fjölbreytt og spennandi og því fylgja umtalsverð ferðalög.

Sérfræðingar alþjóðadeildar veita utanríkismálanefnd og alþjóðanefndum faglega aðstoð og ráðgjöf. Í því felst meðal annars undirbúningur þátttöku í alþjóðlegum fundum innanlands og erlendis auk gagna- og upplýsingaöflunar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með starfi Íslandsdeildar Norðurlandaráðs

  • Fagleg ráðgjöf á sviði alþjóðamála og norrænnar samvinnu

  • Upplýsinga- og greiningarvinna

  • Faglegur og praktískur undirbúningur alþjóðastarfs þingmanna

  • Skipulagning alþjóðlegra funda og ráðstefna hérlendis

  • Önnur verkefni í alþjóðastarfi Alþingis

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Meistarapróf á sviði alþjóðastjórnmála eða öðrum greinum sem nýtast í starfi

  • Góð þekking á alþjóðamálum og norrænni samvinnu

  • Starfsreynsla á sviði alþjóðlegs samstarfs er kostur

  • Reynsla af skipulagningu funda og ráðstefna er kostur

  • Framúrskarandi færni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku

  • Afburðafærni til að tjá sig í ræðu og riti á dönsku, norsku eða sænsku

  • Lipurð og góð samskiptahæfni

  • Frumkvæði og sveigjanleiki

  • Sjálfstæð, nákvæm og öguð vinnubrögð

Utworzono ofertę pracy21. May 2026
Termin nadsyłania podań1. June 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
AngielskiAngielski
Wymagane
Ojczysty
duńskiduński
Wymagane
Ojczysty
Lokalizacja
Kirkjustræti 10, 101 Reykjavík
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe