
Héraðsdómur Reykjaness
Umdæmi Héraðsdóms Reykjaness er ein dómþinghá, sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 1109/2010.
Eftirtalin sveitarfélög heyra til umdæmis hans: Garðabær, Grindavíkurbær, Hafnarfjarðarkaupstaður, Kópavogsbær, Reykjanesbær, Sandgerðisbær, Sveitarfélagið Garður og Sveitarfélagið Vogar.
Aðstoðarmaður dómara
Héraðsdómur Reykjaness auglýsir laust til umsóknar starf löglærðs aðstoðarmanns dómara. Aðstoðarmenn heyra undir dómstjóra og fer um kjör þeirra eftir kjarasamningi. Leitað er eftir drífandi lögfræðingi sem öðlast hefur nokkra starfsreynslu og býr yfir færni til að greina lögfræðileg álitaefni. Starfið krefst sjálfstæðis og nákvæmni í vinnubrögðum. Um er að ræða fullt starf.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með reglulegum dómþingum í einkamálum og gjaldþrotamálum
- Meðferð útivistarmála, þ. á m. áritun stefna og ritun dóma og úrskurða
- Meðferð sakamála þar sem vörnum er ekki haldið uppi
- Ritun úrskurða/ákvarðana í útburðar- og innsetningarmálum, gjaldþrotamálum og málum samkvæmt lögum um skipti á dánarbúum o.fl. þegar vörnum er ekki haldið uppi
- Áritun sektarboða og aðfararbeiðna
- Dómkvaðning matsmanna og meðferð vitnamála
- Aðstoð við dómstjóra við innleiðingu stafrænna lausna
Menntunar- og hæfniskröfur
- Umsækjandi þarf að hafa lokið embættisprófi eða grunnnámi ásamt meistaraprófi í lögum og uppfylla jafnframt að öðru leyti skilyrði 2.-6. töluliðar 2. mgr. 29. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla
- Að lágmarki tveggja ára starfsreynsla á sviði lögfræði
- Reynsla af dómstörfum æskileg
- Haldgóð þekking á réttarfari
- Góð tölvu- og tækniþekking
- Mjög góð færni í íslensku og góð enskukunnátta
- Sjálfstæði í vinnubrögðum og lipurð í mannlegum samskiptum
Utworzono ofertę pracy25. June 2025
Termin nadsyłania podań9. July 2025
Znajomość języków

Wymagane

Wymagane
Lokalizacja
Fjarðargata 9, 220 Hafnarfjörður
Rodzaj pracy
Zawody
Oznaczenia
Podobne oferty pracy (8)

Félagsráðgjafi eða sérfræðingur í barna- og fjölskylduvernd
Fjölskyldusvið

Löglærður fulltrúi á lögmannsstofu
JS lögmannsstofa

Réttindagæslumaður fatlaðs fólks - Mannréttindastofnun Íslands
Hagvangur

Internal Market Affairs Officer (Transport)
EFTA Surveillance Authority

Deildarstjóri umbóta og upplýsingamála
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Sveitarfélagið Vogar

Legal Officer in the EEA Coordination Division (ECD)
EFTA Secretariat

Gjaldkeri/Bókhald/Skrifstofufulltrúi
Vopnafjarðarhreppur