Hrafnista
Hrafnista
Hrafnista

Aðstoðardeildarstjóri endurhæfingardeildar - Hrafnista Nesvellir

Endurhæfingardeild Hrafnistu Nesvöllum óskar eftir að ráða iðjuþjálfa eða sjúkraþjálfara í aðstoðardeildarstjórastöðu.Aðstoðardeildarstjóri er staðgengill deildarstjóra í fjarveru hans, aðstoðar með ýmis verkefni tengd rekstri og stjórnun deildarinnar auk hefðbundinna sjúkraþjálfunarstarfa.

Um er að ræða fjölbreytt starf í þágu íbúa sem krefst sjálfstæðra vinnubragða, frumkvæðis og framúrskarandi samskiptahæfni.
Um 80-100% starf er að ræða.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Aðstoð við stjórnun og rekstur á starfsemi deildarinnar
  • Aðstoð við að skipuleggja störf starfsfólks í samræmi við þarfir þjónustuþega
  • Skoðun, mat og gerð meðferðaráætlunar fyrir íbúa
  • Ráðgjöf og fræðsla til sjúklinga og aðstandenda
  • Eftirfylgni á einstaklings- og hópþjálfun íbúa
  • Þverfagleg teymisvinna
  • Þátttaka í fagþróun
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt starfsleyfi sem iðjuþjálfi eða sjúkraþjálfari
  • Góð samskiptahæfni og faglegur metnaður
  • Jákvæðni, sveigjanleiki og frumkvæði
  • Áhugi á að starfa með öldruðum
  • Góð yfirsýn og skipulagshæfni
  • Þekking á RAI mælitækinu er kostur
Fríðindi í starfi
  • Heilsuræktarstyrkur
  • Samgöngustyrkur með strætó
  • Stuðningur til framþróunar í formi leyfa á launum og námstyrkja
  • Við bjóðum upp á jákvæðan og skemmtilegan starfsanda, áhugaverð verkefni og starf sem er í sífelldri þróun
Utworzono ofertę pracy22. May 2026
Termin nadsyłania podań31. May 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Njarðarvellir 2, 260 Reykjanesbær
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.MotywacjaPathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.Samodzielność w pracyPathCreated with Sketch.Praca zespołowa
Zawody
Tagi zawodowe