Eir hjúkrunarheimili
Eir hjúkrunarheimili
Eir hjúkrunarheimili

Aðstoðardeildarstjóri á Eir endurhæfingu, blundar í þér stjórnandi? - Tímabundin ráðning

Frábært tækifæri til að hefja stjórnunarferillinn.

Eir endurhæfing óskar eftir metnaðarfullum, áhugasömum og hressum hjúkrunarfræðingi í stöðu aðstoðardeildarstjóra í 80-100% starf. Um tímabundna afleysingu vegna fæðingarorlofs er að ræða en möguleiki er á áframhaldandi ráðningu að tímabili loknu.

Endurhæfingardeild Eirar er rekin í samstarfi við Landspítala og koma skjólstæðingar þaðan í endurhæfingu. Árangur deildarinnar er mikill og útskrifast langflestir aftur heim til sín. Starfsemin er metnaðarfull þar sem þverfagleg samvinna á milli starfsstétta er lykillinn að árangri.

Mikilvægt er að viðkomandi geti tekið þátt í teymisvinnu, setið fjölskyldufundi og verið í samskiptum við ættingja.

Aðstoðardeildarstjóri starfar náið með öðrum stjórnendum og fylgir eftir ákvörðunum um skipulag hjúkrunar og verklag á deild sem og innleiðingu nýjunga í hjúkrun er stuðla að auknum gæðum, vellíðan og öryggi sjúklinga.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrg og skipulagning á hjúkrunarþjónustu í samráði við deildarstjóra.
  • Aðstoðardeildarstjóri er staðgengill hjúkrunardeildarstjóra.
  • Sérstök ábyrgð á tilteknum verkefnum og gæðastarfi
  • Almenn störf hjúkrunarfræðings/vaktstjóra að hluta.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt hjúkrunarleyfi er skilyrði.
  • Frumkvæði, skipulögð vinnubrögð og faglegur metnaður.
  • Stjórnunarreynsla er kostur en ekki skylda.
  • Jákvætt viðmót og samskiptahæfni.
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
Utworzono ofertę pracy25. June 2025
Termin nadsyłania podań31. July 2025
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Hlíðarhús 7, 112 Reykjavík
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.Pozytywne nastawieniePathCreated with Sketch.Samodzielność w pracyPathCreated with Sketch.OrganizacjaPathCreated with Sketch.Praca zespołowaPathCreated with Sketch.praca pod presją
Środowisko pracy
Zawody
Oznaczenia