Eðalfang ehf.
Eðalfang ehf.

Aðalbókari

Viltu taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu hjá öflugu fyrirtæki?

Eðalfang leitar að reynslumiklum aðalbókara til að ganga til liðs við fjármálateymi samstæðunnar. Fyrirtækið starfar við framleiðslu, sölu og dreifingu sjávarafurða og er á spennandi vaxtarskeiði og með metnaðarfull áform um frekari uppbyggingu og þróun.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með daglegu bókhaldi og uppgjörum samstæðunnar
  • Afstemmingar og lögbundin skil
  • Samskipti við endurskoðendur og opinbera aðila
  • Þátttaka í umbótum á verkferlum og innra eftirliti
  • Önnur tengd verkefni á sviði fjármála og bókhalds
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi, s.s. viðskiptafræði, reikningshald, viðurkenndur bókari eða sambærileg menntun
  • Haldbær reynsla af bókhaldi og uppgjörsvinnu
  • Góð þekking á reikningshaldi fyrirtækja
  • Góð þekking á Excel og helstu fjárhagskerfi
  • Reynsla af Business Central er kostur
  • Reynsla úr framleiðslufyrirtæki er kostur
  • Frumkvæði, nákvæmni og góð samskiptahæfni
Utworzono ofertę pracy29. July 2026
Termin nadsyłania podań9. August 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Tangarhöfði 3, 110 Reykjavík
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe