A4 Smáralind - Skemmtileg vinna með skóla!
Verslun A4 Smáralind óskar eftir að ráða sölufulltrúa í hlutastarf. Við leitum eftir ábyrgðarfullum og sjálfstæðum einstaklingi til starfa á okkar góða vinnustað. Einstaklingurinn þarf að vera jákvæður með góða þjónustulund og góða samskiptahæfni.
Unnið er seinnipartinn einn til tvo virka daga frá kl 16:00 til 19:00 og annan hvern laugardag. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Helstu verkefni:
· Sala, ráðgjöf og framúrskarandi þjónusta við viðskiptavini verslunarinnar.
· Áfyllingar, framstillingar, móttaka á vörum og afgreiðsla á kassa
· Önnur almenn verslunarstörf.
Hæfniskröfur og reynsla:
· Reynsla af sölu- og verslunarstörfum
· Framúrskarandi þjónustulund og áhugi á sölustörfum
· Sjálfstæði og frumkvæði í starfi
· Snyrtimennska og auga fyrir framstillingu vara
· Sveigjanleiki og geta til að vinna undir álagi
· Góð samskiptahæfni, kurteisi og jákvæðni
· 18 ára aldur
· Íslenskukunnátta
Umsóknarfrestur er til og með 7. október 2024.
Nánari upplýsingar um starfið veitir verslunarstjóri Auður Sigurjóna í síma 580-0010.
A4 er framsækið fyrirtæki og leggur metnað sinn í að vera í fararbroddi á sviði húsgagna, skrifstofu-, skóla-, föndur- og hannyrðavara og leggur áherslu á góða og trausta þjónustu við viðskiptavini. Við erum stolt af því að geta boðið upp á heimsþekkt vörumerki sem eiga það öll sameiginlegt að vera í háum gæðaflokki. Hjá fyrirtækinu starfa um 140 manns.